útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hressilegt andsvar. Hann þarf ekki að hafa miklar áhyggjur af mínu geðslagi eða líðan. Það er enginn tregi í hjarta mínu yfir þessu frumvarpi. Ég hef stutt það frá því að það kom fram. Ég tel það hins vegar ekki ganga nægilega langt og inni hv. þingmann eftir svari: Hvað finnst honum sjálfum? Er hann samþykkur breytingartillögunni sem við erum að leggja fram? Ef ekki, af hverju? Af hverju vill hann ekki mæla fyrir um að það sé skylt að afturkalla þessa vernd ef einstaklingar brjóta hér af sér með svo alvarlegum hætti eins og hér um ræðir?
Hvað varðar ummæli hv. þingmanns um atkvæðagreiðslur og annað hér á fyrri þingum stend ég nú hér bara sjálfur og tók ekki þátt í því og kann ekki þá sögu alla, þótt mér skiljist að formaður flokks hv. þingmanns hafi með einhverjum hætti kannski reifað hugmyndir eins og hér um ræðir, í það hafi verið vel tekið og formaður Sjálfstæðisflokksins, hv. þm. Guðrún Hafsteinsdóttir, þáverandi eða verðandi dómsmálaráðherra, hafi einmitt unnið að málum eins og þessum. Ég hef svo sem ekki meira um það að segja og það er auðvitað rangt hjá hv. þingmanni að ætla mér það eða öðrum þingmönnum Sjálfstæðisflokksins að ætla einhvern veginn að tefja fyrir þessu máli. Þvert á móti minni ég hv. þingmann á að þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hv. þm. Jens Garðar Helgason, kallaði akkúrat eftir þessu máli hér um miðjan september, óskaði eftir að það kæmi loksins á dagskrá þannig að það væri hægt að afgreiða það.