útlendingar.
Herra forseti. Jú, auðvitað er ég sammála því að fá hér skýrari löggjöf. Hitt er alveg ljóst að framganga Sjálfstæðisflokksins í þessu máli, m.a. að halda þessum ræðustól uppteknum, hefur verið með þeim hætti að þetta mál hefur ekki komist á dagskrá. Og það er alveg ljóst að við hefðum getað lokið þessu á síðasta þingi ef menn hefðu ekki viljað jórtra hér á öllum málum. Við þurfum einmitt að ljúka þessu máli með skýrum hætti og ég tel þetta mál vera þannig að menn eigi ekki að gera hér eitthvert aukaatriði að aðalatriði heldur vinda okkur í að gera þessa löggjöf skýrari og betri. Því það er alveg rétt sem hefur komið fram að hin Norðurlöndin eru að herða sína löggjöf meðan við erum hér að elta að einhverju leyti. Þess vegna þurfum við sem erum sammála að fá betri gang (Forseti hringir.) í þessi mál og gera ekki einhver alger aukaatriði að aðalatriðum því það er auðvitað málið að ná hér framgangi í málefnum útlendinga á Íslandi. (Gripið fram í: … styður þá breytingartillöguna.)