útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Erni Hilmarssyni fyrir ræðuna og þakka honum líka fyrir gott samstarf í nefndinni við vinnu þessa máls og fleiri mála. Mér þykir samt miður, ég verð að viðurkenna það fyrir mitt leyti, að á lokametrum afgreiðslu þessara mála sé svolítið farið að reyna að teikna upp þá mynd að þetta frumvarp gangi ekki nægilega langt, að það muni ekki stuðla að auknu öryggi hér á landi, að það þurfi að breyta orðalaginu á þann veg sem hv. þm. Brynjar Níelsson lagði fram, þrátt fyrir að í umræðum við dómsmálaráðuneytið hafi einmitt komið fram, og það var miður að hv. þingmaður komst ekki á fundinn, að það fyrirkomulag sem er í frumvarpinu nær utan um þessa þætti sem Sjálfstæðisflokkurinn er að leggja til.
Ég sé að þingmaðurinn hristir höfuðið og því langar mig að spyrja: Hvað úr þeirri upptalningu sem Sjálfstæðisflokkurinn leggur til, og upptalning býr alltaf til þá hættu að eitthvað endi utan upptalningar, hvað af þessum atriðum sem Sjálfstæðisflokkurinn er að leggja til að verði sett inn í frumvarpið fellur ekki undir alvarlegt brot eða brot sem ógnar almannaöryggi eða sérstaklega alvarlegt brot? Hvað af þessum flokkum fellur ekki þar undir? Því það er ekki að sjá að mínu mati og ekki að mati ráðuneytisins, ef ég skildi þau rétt. Á sama tíma er hægt að horfa til annarra landa þar sem þessir þrír flokkar eru einmitt notaðir á Norðurlöndunum til að skilgreina hvaða brotaflokkar það eru sem kalla á afturköllun. Þetta er í rauninni bara sú framkvæmd sem er þá í takt við Norðurlöndin, ekki svona listi sem getur útilokað eitthvað heldur einmitt að það sé hægt að leggja mat á það að ef einhver fremur alvarlegt brot sem ógnar almannaöryggi eða sérstaklega alvarlegt brot þá eigi að vera heimild til að afturkalla vernd.
Ég heyri líka að hér er kallað eftir því að breyta heimildinni í skyldu. Ef frumvarpið er lesið og rætt við dómsmálaráðuneytið líkt og við gerðum þá eru heimildarákvæði í núgildandi lögum. Heimild kemur 41 sinni fram í núgildandi lögum og það er ekki þannig að þessar heimildir séu ekki nýttar, þeim er beitt ef þörf er á. Ég kem betur inn á þetta í seinna andsvari.