útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og tek undir þakkir fyrir gott samstarf í nefndinni í þessum málum. Tillaga 1. minni hluta miðar að því að skipta þessum flokkum upp í tvennt, annars vegar um skyldu til að afturkalla alþjóðlega vernd ef einstaklingur er álitinn hættulegur öryggi ríkisins, hann hefur hlotið endanlegan dóm fyrir alvarlegt afbrot og er af þeim sökum hættulegur samfélaginu, eða hann hefur verið dæmdur fyrir afbrot sem ógna allsherjar- og almannaöryggi.
Hv. þingmaður spurði mig út í hvaða brotaflokkar ættu ekki þar undir en ættu undir hitt. Þeir geta verið fjölmargir og ég sé svo sem ekki ástæðu til að fara að telja upp alla, enda kannski ekki alveg með þá í handraðanum. En fyrst kemur auðvitað til hugar hryðjuverk, skipulagning hryðjuverka.
Bara þannig að það sé sagt hér í púlti: Ég sat nánast allan fund allsherjar- og menntamálanefndar en gat því miður ekki verið á meðan sérfræðingar dómsmálaráðuneytisins komu á fund nefndarinnar vegna þess að ég var að sinna öðrum störfum, hluta af minni þingmennsku. Ég sakna þess mikið. Auðvitað hefði verið betra kannski að fá eitthvert minnisblað eða eitthvað skriflegt frá þeim. Það er reginmunur á „heimilt“ og „skylt“. Það þarf ekki lögfræðing til þess að átta sig á því, það er almennur málskilningur. Heimildarákvæðið er ekkert annað en það. Það veitir þá stjórnvöldum og Útlendingastofnun heimild til þess að afturkalla verndina en þau þurfa ekki að gera það. Það geta verið pólitískar áherslur síðar meir, afstaða innan stofnunarinnar, tíðarandinn eða hvað það nú er. Þess vegna teljum við mikilvægt að mæla fyrir um skylduna sjálfa. Það eru ekki eingöngu við heldur líka Evrópusambandið. (Forseti hringir.)
Ég vil spyrja hv. þingmann: Ef ætlunin er að samræma íslensk lög við það sem tíðkast á Norðurlöndunum og í Evrópusambandinu, af hverju þá ekki að mæla fyrir um skylduna eins og Evrópusambandið gerir?