157. löggjafarþing — 69. fundur,  10. feb. 2026.

útlendingar.

112. mál
[17:06]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hér kemur einmitt akkúrat fram það sem maður í rauninni óttast varðandi umræðuna hér við 3. umræðu. Það er búin að vera mikil sátt inni í nefndinni, búin að vera mikil sátt inni í þingsal, við erum að reyna að bæta íslenska löggjöf, stuðla að auknu öryggi fyrir land og þjóð og við höfum staðið þétt hlið við hlið við að innleiða þessar breytingar en á lokametrunum eru lagðar fram breytingartillögur sem fela í rauninni enga raunverulega breytingu í sér. Það að halda því fram að skipulagning hryðjuverka falli ekki undir alvarlegt brot, brot sem ógna almannaöryggi eða sérstaklega alvarlegt brot er mjög afhjúpandi fyrir þann málflutning að vera að leggja hér til að það þurfi að telja upp þessa málaflokka hérna. Þessi brot falla undir það orðalag sem er í frumvarpinu. Líkt og hefur komið fram við vinnslu nefndarinnar er einmitt gott að vera með almennar línur þannig að hægt sé að leggja mat á það þegar einstaklingur sem hefur fengið alþjóðlega vernd hefur fengið ákveðin réttindi á Íslandi, fremur brot sem er alvarlegt eða brot sem ógnar almannaöryggi eða sérstaklega alvarlegt brot, þá sé heimild til að afturkalla þessa vernd.

Varðandi heimild og skyldu: Í frumvarpinu er talað um heimild í öllum ákvæðum. Myndi hv. þingmaður vilja ráðast í heildarendurskoðun og breyta öllum heimildarákvæðum í skyldu eða treystir hv. þingmaður stjórnvöldum til að vega og meta hvenær rétt er að beita þeim ákvæðum sem heimild er til að beita? Ég er alveg til í þessa heildarendurskoðun en ég tel gott að við klárum þetta mál fyrst svo það taki gildi og svo getum við ráðist í frekari endurbætur.