útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágætt andsvar þótt það hafi kannski ekki verið við ræðuna sem ég var að flytja hér. Því skal alveg haldið til haga að kannski gætir einhvers misskilnings hvað það varðar að breytingartillagan mælir fyrir um skyldu til að afturkalla alþjóðlega vernd ef ástæða er til að álíta útlending hættulegan öryggi ríkisins. Það er skyldan. Hv. þingmaður spurði mig út í það hvaða brot gætu fallið þar undir og ég nefndi hryðjuverkatengd brot, sem mér finnst eðlilegast að líta til. (GAS: Ég spurði hvað falli ekki undir þennan flokk.) Hvað fellur ekki undir alvarlegt brot? Það getur verið bara — (Gripið fram í.) núna átta ég mig ekki á hvert þingmaðurinn er að fara. Það getur verið bara hraðakstursbrot, ég veit ekki alveg hvert þingmaðurinn er að fara. Textinn er skýr. Hann miðar að þessu, einstaklingar sem hafa verið dæmdir fyrir brot og eru álitnir hættulegir öryggi ríkisins — það ætti ekki að vera vafa undirorpið. (Forseti hringir.) Það getur líka verið þarna stórfellt fíkniefnabrot eða annað slíkt.