útlendingar.
Virðulegur forseti. Fyrirgefðu, ég verð að nýta mér þennan lið þegar þingmenn koma upp í andsvörum við aðra. Það er ekki hægt að blanda sér í umræðuna og fara bara með algjöra vitleysu. Hv. þm. Sigurjón Þórðarson fór hér með algjört bull, að reyna að halda því fram hér að það hafi verið Inga Sæland sem hafi komið með fyrstu tillögur að breytingum í þessa átt. Það er kannski ágætt að hv. þm. Guðmundur Ari Sigurjónsson heyri það: Þessi breytingartillaga sem við erum að ræða hér kom fram við 2. umræðu. Ég túlkaði orð stjórnarliða með þeim hætti að þeir hefðu áhuga á að skoða það í nefndinni þannig að mér þykir leiðinlegt að heyra að það hafi ekki náðst samstaða um það í nefndinni. (Gripið fram í.) En það var tími til þess. Það sem Inga Sæland kom með 13. júní 2024 við lok 3. umræðu var illa orðuð breytingartillaga eitthvað í þessa átt, gekk örugglega miklu lengra en það sem við ræðum núna og örugglega lengra en breytingartillögur okkar núna. En það var reyndar daginn eftir að þáverandi dómsmálaráðherra, Guðrún Hafsteinsdóttir, hafði boðað í eldhúsdagsumræðum að þessi vinna væri hafin í ráðuneytinu. Níu mánuðum seinna koma ráðherrar úr þessari ríkisstjórn með eitthvert svona mál og svo ætlar hv. þm. Sigurjón Þórðarson að reyna að kenna stjórnarandstöðunni um að þetta mál sé ekki farið hér í gegn. (Forseti hringir.) Hv. þingmaður veit mun betur. Hér er ítrekað búið að leggja til að þetta mál verði sett á dagskrá (Forseti hringir.) og það að stjórnarandstaðan bjóði svo fram að betrumbæta málið með rökstuddum tillögum — það er ekki einu sinni hlustað á það. Það skiptir engu máli. (Forseti hringir.) Takið efnislega umræðu um breytingartillögurnar sem slíkar.