157. löggjafarþing — 69. fundur,  10. feb. 2026.

útlendingar.

112. mál
[17:12]
Horfa

Snorri Másson (M):

Virðulegur forseti. Hér erum við komin í 3. umræðu um afturköllunarfrumvarpið sem við höfum nú haft til meðferðar um langa hríð. Það eru nokkrir punktar sem hafa komið fram í umræðunni sem er vert að taka aðeins til umræðu. Það sem um ræðir í þeirri breytingartillögu sem nú liggur fyrir og eru að mínu mati mikilvægustu þættirnir í henni, sem maður hefði kannski viljað ná betri umræðu um í nefndinni til að gera hana mögulega að tillögu allrar nefndarinnar, eru þær breytingar að heimild sé breytt í skyldu. Það eru áhöld um það hversu langt skuli ganga í því að kveða á um einstaka brotaflokka og vel hægt að taka umræðu um það. En frá mínum bæjardyrum séð er líka full ástæða til að taka til umræðu þessar heimildir og skyldur. Það er ekkert verra að hafa þetta skyldu vegna þess að stjórnvöld hafa augljóslega á þessu stigi máls margvíslegar heimildir á ýmsum sviðum sem eru ekki nýttar vegna þess að það veltur alltaf á pólitískum vilja hverju sinni og það er ekki jafn mikil trygging fyrir því augljóslega í svona frumvarpi að slíkt verði að kerfisbundnu verklagi ef ekki er kveðið á um skyldu. Það er sjálfsagt að kveða á um skyldu og það styð ég og þess vegna skrifar maður undir breytingartillöguna.

Hv. þm. Guðmundur Ari Sigurjónsson vísar til þess að það hafi ríkt töluverð sátt í nefndinni um vinnu í tengslum við þetta mál. Mér finnst þessar breytingartillögur ekki vera til marks um nokkuð annað en að áfram sé bara ágæt sátt um málið og að samstarfið geti áfram verið farsælt. En það er líka sjálfsagt að ef menn telja ástæðu til að hnykkja á einhverjum atriðum í þessa átt þá geri þeir það þá bara á eðlilegum tímapunkti í umræðunni. Í 2. umræðu kemur þetta fram, svo fer þetta aftur inn í nefndina. Ég bendi hins vegar á að eins mikil sátt og hefur ríkt um málið þá eru það nú samt breytingartillögur minni hlutans sem hafa komið því á þann stað sem það er núna. Hugmyndin um að hafa ítrekuð brot kemur upphaflega fram í nefndaráliti minni hlutans þótt hæstv. dómsmálaráðherra hafi af pólitískum ástæðum ekki viljað kannast við þátt minni hlutans í breytingunum. Maður getur virt það við hæstv. ráðherra en það er engu að síður staðreynd málsins að hér hefði líklega ekki verið kveðið á um ítrekuð brot nema ef verið hefði fyrir tillögur minni hlutans. Ég er bara stoltur og ánægður með þann árangur sem hefur náðst í að þoka málinu í enn skýrari farveg, að við mótum okkur þá sérstöðu á veraldarsviðinu sem við teljum okkur þurfa út frá hagsmunum íslensks samfélags og kveða á um að ítrekuð brot leiði líka til þessa.

Í lokaútgáfu þess ákvæðis sem birtist í áliti minni hlutans er ekki talað um ítrekuð brot nema í c-lið 4. gr. en það er talað um að afbrot sem ógna allsherjarreglu eða almannaöryggi verði til þess að skylt sé að draga til baka verndina, þ.e. afbrot, í fleirtölu, sem ógna allsherjarreglu eða almannaöryggi leiða til afturköllunar. Ef við hefðum fellt á brott allsherjarreglu og almannaöryggi, að þessi afbrot þyrftu að ógna allsherjarreglu og almannaöryggi, eins og var hugmyndin líka í nefndaráliti mínu á fyrri stigum málsins, ef við hefðum fellt þessa þrengingu á brott um allsherjarreglu og almannaöryggi, þá hefði mögulega verið hæpið að hafa skylduna. Þá hefðu minni háttar afbrot, bara fyrir það að vera ítrekuð, á svo litlum skala, getað leitt til þess að stjórnvöld væru skyld til þess í stað þess að vera það heimilt — þetta er eiginlega tæknilegt atriði en varðar útfærslu þessa endanlega ákvæðis sem er nú bara ágætt eins og það kemur núna fyrir þingið. Ég hvet hv. þingmenn stjórnarmeirihlutans til að íhuga hvort þeir vilji vinna meira að þessu eða hvort þeir vilji samþykkja þetta eins og það er, þótt mér finnist það hljóma eins og svo verði ekki.

Allt um það, þessi tillaga er eitthvað sem á fullkomlega eðlilegan rétt á sér í þessari umræðu. Hún bætir málið enda, eins og fram hefur komið í máli annarra hérna, er augljóslega reginmunur á milli þess að stjórnvöld séu skyldug til að fella brott alþjóðlega vernd ef einhver brýtur svona af sér á móti því að hafa bara heimild til þess, þótt heimildin gangi ágætlega í rétta átt. Ég tek fram að að sjálfsögðu mun ég styðja málið og ég tel það ekki vonlaust eða gagnslaust af þessum sökum en þætti ekkert verra ef það væri kveðið á um skylduna.

Það er margt annað í þessu, 18 mánaða reglan, umborin dvöl. Ég hef nú rakið áhyggjur af því á fyrri stigum. En að þessu öllu sögðu þá tel ég einfaldlega að breytingartillagan eigi fullan rétt á sér og sömuleiðis sjónarmið sem hafa verið rakin í nefndarálitum á fyrri stigum um að þetta mál sé ágætt skref í rétta átt í útlendingamálum. Þetta verða mikil jaðartilvik. Það sem þarf að einblína á í útlendingamálum á þessu stigi er að halda áfram að draga úr öllum mögulegum hvötum þess að menn sæki hér um hæli og hafa kerfið þannig að við tryggjum að aðeins þeir sem bráðnauðsynlega og raunverulega þurfa á því að halda að sækja um hæli eða vernd séu þeir sem geti sótt um, en ekki að það sé þessi opna leið inn í landið sem hefur verið í mörgum tilvikum.

Að því öllu sögðu þá get ég bara lýst yfir ítrekuðum stuðningi við frumvarpið. Betra væri ef breytingartillaga minni hlutans yrði höfð með. Ég heyri á hv. þingmönnum meiri hlutans að það er ekki tilefni til að vera vongóður um það en ég þakka þeim að öðru leyti og hv. þingmönnum í allsherjarnefnd fyrir ágætt samstarf í málinu.