útlendingar.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Það er gott að heyra af góðu samstarfi sem ríkir í hv. allsherjar- og menntamálanefnd og greinilegt að þar er mikill munur frá síðasta kjörtímabili þegar rædd voru útlendingamál þar því að það voru heitustu og erfiðustu málin. En gott að heyra af þessari miklu breytingu sem hefur átt sér stað þar. Mig þyrstir í að vita og spyr hv. þingmann út í viðbrögð ráðuneytisins við þessum breytingartillögum frá minni hlutanum vegna þess að eftir því sem ég kemst næst hefur ráðuneytið ekkert sett sig upp á móti þessum tillögum eða bent á einhverja annmarka við að samþykkja þær. Nú er ég kannski sérstaklega að vísa í ákvæðið sem varðar skyldu í staðinn fyrir að heimila. Getur hv. þingmaður upplýst okkur um það hver viðbrögð ráðuneytisins voru við þessum breytingartillögum?