útlendingar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur aftur fyrir góða spurningu. Hún varðar skuldbindingar Íslands gagnvart alþjóðlegum samstarfsaðilum okkar. Við sjáum það t.d. núna að fjallað er um ákvörðun spænskra stjórnvalda um að veita, hvort það hafi verið 500.000 manns, dvalarleyfi á Spáni, sem höfðu dvalist þar ólöglega og komið þangað úr fjarlægum heimshlutum. Þarna er tekin ákvörðun um að þeir fái að vera og fái heimildir til að vera þar. Við slíkar aðstæður verð ég sannarlega hugsi yfir t.d. þessu frjálsa flæði sem við búum við innan EES, að við erum auðvitað berskjölduð ef ríki taka slíkar ákvarðanir sem eru svo mjög í anda opinna landamæra, að við sitjum þá í súpunni gagnvart slíkum ákvörðunum annarra Evrópuríkja.
Á sama hátt má velta því fyrir sér hjá okkur á Íslandi, ef við erum ekki með skyldu hér til þess að svipta menn alþjóðlegri vernd, menn sem gerast sekir um alþjóðlega glæpi og því augljóst að þeir ætli ekki að virða okkar samfélagssáttmála, ef við erum ekki með slíka skyldu, hvernig samningsaðili erum við þá gagnvart t.d. samstarfsaðilum okkar á Evrópska efnahagssvæðinu eða innan Schengen í víðari skilningi, ef við tryggjum ekki að þeir sem fá hér dvalarleyfi og geta þar með ferðast innan alls þessa svæðis séu ekki látnir sæta eðlilegum skilyrðum þess efnis? Það er spurning um hvernig við uppfyllum okkar skuldbindingar, sem er nú mikið rætt af hálfu ákveðinna aðila og væri óskandi ef þessi sami áhugi sprytti upp í tengslum við svona mál.