157. löggjafarþing — 69. fundur,  10. feb. 2026.

útlendingar.

112. mál
[17:24]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Herra forseti. Umræðan er búin að vera fróðleg og bara ágæt. Ég vil byrja á því að þakka nefndinni fyrir ágætisvinnu og gott samstarf að miklu leyti. Þó að ég sé búinn að vera hér í eitt ár þá kemur pólitíkin manni stundum á óvart. Mig langar að nefna að í dag er 10. febrúar og hér var reynt að koma með þetta mál inn korter í jól. Það náðist ekki en svo líður rúmur mánuður, nærri einn og hálfur mánuður, og þetta er komið núna, sem er gott. Ég bara fagna því að við séum að ræða þetta mál hér.

Hér hefur aðeins verið umræða um það hvort breytingartillaga Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins kalli á heildarendurskoðun lagabálksins. Það held ég að sé alveg ljóst að þurfi ekki. Í samtali inni í nefndinni kom fram að það að breyta úr heimild í skyldu í þessu frumvarpi sendi ákveðin sterk skilaboð út í samfélagið. Það væri líka ásýndarmál að setja skyldu frekar en heimild og svo samræmist það að sjálfsögðu hinum norrænu ríkjunum og því sem Evrópusambandið ætlar að gera.

Hér erum við að ræða um frumvarp sem er í grunninn mjög gott og það batnaði verulega þegar minni hlutinn kom á fyrri stigum málsins inn orðunum ítrekuð brot. Þar gerði meiri hlutinn vel. Hann tók það sem minni hlutinn nefndi og gerði að sínu, sem er bara gott, sem á að gerast í þinginu en síðan kemur önnur góð tillaga, að breyta þarna orðinu heimild í skyldu. En þá virðist eins og meiri hlutinn hafi bara fengið nóg og þarna væri minni hlutinn búinn að setja of mikil fingraför á frumvarpið. Ég sé lítið annað en að það sé bara pólitískt að stíga ekki þetta skref til fulls, að ganga ekki þangað sem önnur ríki Evrópu eru að gera. Það er sérstakt og ég hefði haldið að við gætum unnið betur saman, jafnvel þótt minni hlutinn komi með ágætistillögur, að menn geti tekið þær og gert þær að sínum. Ég held að við, fulltrúar úr Sjálfstæðisflokknum og Miðflokknum inni í nefndinni, hefðum ekkert orðið sárir þó að slíkt hefði verið gert. Við hefðum fagnað því að bæta þetta frumvarp.

Markmið frumvarpsins eru góð, að samræma löggjöf Norðurlandanna og skuldbindingar Íslands innan Schengen. Svo er auðvitað Evrópusambandið að setja þetta skylduákvæði inn hjá sér þannig að maður veltir því fyrir sér hvers vegna við stígum ekki þetta skref til fulls. Það er sérstakt. Það eru ákveðin skilaboð fólgin í því að við höfum heimild til að afturkalla vernd í mjög alvarlegum brotum. Hver sem hlustar á talað mál áttar sig á því að það er munur á heimild og skyldu. Skilaboðin eru líka skýr. Þeir sem eru mögulegir brotamenn — auðvitað geta menn gerst brotamenn á skömmum tíma en oft vita menn að menn ætla að fremja einhvers konar afbrot. Ef menn vita að það er skylda stjórnvalda að afturkalla verndina eru þeir ólíklegri bæði til að koma til landsins — þetta gæti fækkað brotamönnum sem koma til Íslands — og þá að fremja afbrot.

Það er alveg þekkt að ef menn ætla sér að komast yfir girðingu og horfa eftir girðingunni og sjá að hún er töluvert lægri á einum stað en öðrum þá streymir hjörðin þar yfir. Maður hefur séð kindahjarðir fara í gegnum girðingu þar sem er rof í girðingunni. Við mannfólkið erum ekkert öðruvísi. Ef Ísland er eftirbátur annarra landa hvað þetta frumvarp og þessi lög varðar þá er meira aðdráttarafl fyrir mögulega brotamenn að koma til landsins. Þeir sem sækja til vestrænna ríkja, ólíkt þenkjandi einstaklingar en þeir sem búa þar — þá er það líka stundum þannig að þeir vita að þeim verður brottvísað ef þeir lenda í einhverju en bara ef þeir geta verið í þessu góða umhverfi í einhvern tíma þá eru einhvers konar verðmæti fólgin í því.

Við erum í dauðafæri að taka skrefið til fulls eins og norrænu ríkin og Evrópusambandið og ég ítreka bara að mér þætti vænt um að fá útskýringar á því hvers vegna við gerum það ekki vegna þess að við þurfum ekki að fara í heildarendurskoðun á lagabálknum þrátt fyrir að orðið heimild komi miklu oftar fyrir í — eða skylda kemur ekki fyrir í lagabálknum en skylda gæti komið fyrir á þeim stað þar sem 1. minni hluti, sem er Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkurinn — það er vilji almennings að skilaboð okkar sem þjóðar séu sambærileg og skilaboð nágrannaríkja okkar, að þeir sem koma hingað til lands og verða uppvísir að stórfelldum brotum geti ekki tafið málið því ef heimild er þá er hún að öllum líkindum þess eðlis og veldur því að það er auðveldara að þvæla málin. Auðvitað er allt kæranlegt. Úrskurðir eru kæranlegir og þeir eru líklegri til að taka lengri tíma í kerfinu ef heimild er til staðar frekar en skylda.

Ég er nokkuð viss um það, þrátt fyrir að við eigum ekki að fara eftir skoðanakönnunum í hvert sinn, að við getum tekið þannig á þessum málum núna og gert þetta frumvarp enn betra, því að frumvarpið er gott. Við fengum fullt af fólki fyrir nefndina sem talaði um hversu gott það væri. Það er hægt að bæta það og það var, fannst mér, sérstakt að við 2. umræðu drógum við tillöguna til baka vegna þess að við fengum vísbendingar um að við fengjum gott veður í nefndinni og í raun breyttist ekkert inni í nefndinni. Við fengum fyrir nefndina fulltrúa dómsmálaráðuneytisins og það er ekkert því til fyrirstöðu að breyta þessu eins og Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur óska eftir í sínum tillögum, en einhvern veginn — og það er pólitíkin sem ég skil ekki, sú pólitík er ekki í þágu landsmanna. Hún er í þágu einhverra sérhagsmuna, að menn geti barið sér á brjóst og sagt að þetta sé okkar frumvarp, meiri hlutans. Það sést kannski vel í því að hæstv. dómsmálaráðherra, sem er ekki staddur hér, var ekki tilbúinn til að viðurkenna það að á fyrri stigum málsins komu Miðflokkur og Sjálfstæðisflokkur með orðin ítrekuð brot inn í frumvarpið. Það sýndi sjálfstraust hæstv. ráðherra að taka það inn í frumvarpið en ráðherra gat síðan ekki viðurkennt það, og þurfti kannski ekkert að gera það, að þetta hefði komið frá minni hlutanum. En það er kannski pólitíkin í þessu sem ég á kannski aðeins eftir að skilja. Ég veit ekki hvort það sé pressa á hæstv. dómsmálaráðherra eða hvort hann hafi áhrif inn í nefndina eða nefndarmenn inn í allsherjar- og menntamálanefnd, þeir hafa ekki haft að mínu mati — annaðhvort er þetta pólitík eða það vantar hugrekki til að samræma þetta við norræn lög og svo Evrópusambandið. Það er sérstakt, þessi lönd eru öll innan Schengen. Segjum sem svo, eins og ég lýsti áðan með girðinguna, að við tökum að einhverju leyti vægar á brotum, það sé ekki samræming í framkvæmd. Það er ekki gott að Ísland sé einhvers konar einfari í þessu máli þegar við sjáum að það eru allir að herða og herða og herða. Það sem við teljum í dag að sé hart er líklegt að verði bara fullkomlega eðlilegt eftir örfáa mánuði. Í stað þess að þurfa að fara að breyta aftur og aftur — hvers vegna, þegar við höfum tækifæri til þess að taka þetta skref sem Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkurinn eru búnir að útbúa hér handa okkur, hvert sem það skref yrði tekið, er að mínu mati óskiljanlegt.

Það er munur á þessum orðum. Ég bara vil að menn átti sig á því að það sem meiri hlutinn er hér — það á reyndar eftir að greiða atkvæði um þetta en ég tel allar líkur á því að ríkisstjórnarmeirihlutinn muni fella tillögu minni hlutans, Sjálfstæðisflokks og Miðflokks, um að breyta orðinu heimild í skyldu. Þá sjá menn í raun hvar pólitíkin liggur í þessu máli. Það er ágætt að menn haldi því bara til haga, því að öll erum við að vinna að hag þjóðarinnar, að brotamenn sem fremja alvarleg brot, alvarlegar líkamsárásir, nauðganir, mögulega barnaníð, að meiri hlutinn telji það ekki vera skyldu að vernd þeirra sé afturkölluð heldur sé það heimildarákvæði. Heimildarákvæði eru úti um allt í lögum. Þau lög þar sem heimild er — við sjáum að heimildir eru ekkert alltaf nýttar. Auðvitað getur það verið núna í hugum þeirra sem eru hér í salnum að við munum nýta, auðvitað nýtum við heimildir, auðvitað gerum við það. En við sjáum að það þarf ekki annað en að tíðarandinn breytist til að menn horfi í aðrar áttir. Menn túlka lög og dæma síðan eftir þeim túlkunum. Við sjáum það að dómarar hafa klofnað í afstöðu sinni. Menn geta klofnað í afstöðu til heimildar. Ef þetta gengi eftir þyrfti ekki að bíða eftir minni hlutanum í því að samþykkja þetta mál. Að sjálfsögðu munum við samþykkja eins og það er en þegar það er verið að bjóða manni eitthvað sem bætir stöðuna — ég veit ekki hvaða orð maður ætti að nota yfir það að þiggja það ekki þegar viðbótin er til góða fyrir alla en þú heldur að þitt eigið ljós dofni aðeins yfir því. Ég finn ekkert annað en bara orðin hreinir sérhagsmunir, sérhagsmunir yfir almannahagsmuni. Þetta mál kennir mér það að pólitíkin er skrýtin tík. Þetta er alla vega skref í rétta átt en vonandi sjá menn ljósið og við gerum eitthvað gott úr þessu.