útlendingar.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir ágætisandsvar. Það sem hv. þingmaður nefnir er að þetta mál er já, kannski miklu minna en almenningur heldur. Það hefur komið hér fram í ræðum reyndar og hv. þm. Grímur Grímsson hefur alveg nefnt það hér, sem er alveg rétt, að þetta mál snertir ekki mjög marga. Það eru ekki margir sem eru með vernd sem eru í þessum brotaflokki, þetta eru örfáir einstaklingar. En þetta skiptir samt máli, þetta er ákveðin sýn og áferð í þessu máli. Maður lærir það smátt og smátt að það er allt stór pólitík í þessu þannig að ég tek undir það með hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni og ég myndi vilja að við tækjum ákveðið frumkvæði í því af því að við erum eyja. Við höfum ákveðna sérstöðu í þessum málaflokki. Við getum gert aðra hluti heldur en bara apa upp eftir Norðurlöndunum og Evrópu. Ég veit að það kostar vinnu en ég held að við sem þjóð ættum að leggja í þá vinnu því við erum ekki mörg þó að landið sé stórt. Við þurfum að gæta þess að við höldum í það sem við höfum og hér er ég ekki að tala um hreina fortíðarþrá en íslenskt samfélag er á toppnum hjá Sameinuðu þjóðunum um lífsgæði en það getur molnað hratt undan því ef við missum tökin. Þess vegna ættum við Íslendingar, sem sýnum frumkvæði í ákveðnum málaflokkum, að sýna frumkvæði í þessum málaflokki líka og ég get tekið undir að þetta eru mál sem þurfa miklu meiri umræðu hér á þinginu.