157. löggjafarþing — 69. fundur,  10. feb. 2026.

útlendingar.

112. mál
[17:47]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvar. Varðandi það dæmi sem hv. þingmaður nefnir tel ég að ef það er einungis þjónustan sem er verri í heimalandinu þá sé þetta frumvarp þess eðlis að það sé hægt að afturkalla verndina og koma þessum einstaklingi úr landi. En punkturinn er kannski þessi sem skiptir svo miklu máli, sem hv. þingmaður hefur nefnt, að þetta eina frumvarp er ekki þannig að almenningur finni eitthvað fyrir því eftir að það fer í gegn. Þetta eru einstaka einstaklingar sem þetta kemur til með að hafa áhrif á þannig að þetta hefur mjög lítil áhrif og það hefur meiri hlutinn alveg sagt og er ekkert að segja neitt annað. En það sem kemur mér á óvart er það hvernig meiri hlutinn hefur haldið á þessu máli og hvernig dagskrárvaldið hefur verið nýtt. Fyrir jól þegar það var búið að semja um þinglok þá dúkkar þetta mál upp greinilega í pólitískum tilgangi, engu öðru, því þau vissu að þetta færi ekki inn á borð þingsins þá og þá er hægt að segja að stjórnarandstaðan sé á móti málinu og sé að tefja. Þetta er hrein pólitík. Svo hefst þing og ekkert bólar á málinu sem þessi asi var rétt fyrir jól að koma á dagskrá og ekki var minni hlutinn að stöðva málið hér eftir áramót. En núna er þetta komið hingað 10. febrúar. Það er ágætt og það hefði verið best að tekið hefði verið tillit til Miðflokksins og Sjálfstæðisflokks í þeim athugasemdum sem þeir gerðu við frumvarpið. En almenningur getur ekki búist við því að hér hverfi fullt af erlendum glæpamönnum af landi brott með þessu frumvarpi.