157. löggjafarþing — 69. fundur,  10. feb. 2026.

útlendingar.

112. mál
[17:49]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir bæði prýðilega ræðu og eins vinnu hans og annarra í hv. nefnd. Það er freistnivandi hér, að nefna og ræða, af því hv. þingmaður vék örlítið að því í sínu erindi hér, þetta leikrit sem átti sér stað hér fyrir jólin, þar sem reynt var einhvern veginn að mála það upp sem svo að það væri Miðflokkur eða Sjálfstæðisflokkur sem kæmu í veg fyrir afgreiðslu þessa máls. En af því að hluta dagsins hefur nú verið varið í að ræða það þá held ég að ég láti það liggja milli hluta, enda liggja þau gögn öll á borðinu um hvernig þessu máli hefur verið raðað inn á dagskrá þingsins, ýmist ekki eða aftast eða mjög aftarlega.

En það vakti athygli mína í ræðu hv. þingmanns, þar sem hann fjallar um vinnuna sem átti sér stað í nefndinni, og vissulega, eins og hv. þingmaður vék að, komst hugtakið ítrekað til skila. Meiri hlutinn gerði það að sínu, sem er bara vel. Ég ætla ekki að missa svefn yfir því þó að einstaka þingmenn eða hæstv. ráðherrar kannist ekki við hvaðan hugmyndin er ættuð. Aðalatriðið er að hún komi til framkvæmda. Það sem mig langar hins vegar að spyrja hér í fyrra andsvari mínu til hv. þingmanns er varðandi muninn á skyldunni og heimildinni. Þar er ég á svipuðum slóðum og hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Ef aðstæður, til að mynda í heimalandi, eru metnar hættulegar, ófullnægjandi eða ómannúðlegar eða heilsa aðila í málinu er metin ekki góð eða eitthvað slíkt, hver er þá munurinn á því hvernig annars vegar hugtakið heimild mun virka fyrir dómi hér heima og hins vegar hugtakið skylda?