útlendingar.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir ágætisandsvar. Sjálfur er ég ekki löglærður þannig að ef við værum með samhliða tvo veruleika og í öðrum væri dómari sem væri með skylduna og í hinum væri dómari með heimildina — ef það er þannig að einhverjum stafar lífshætta af því að fara til síns heimalands þá mun Ísland ekki, og ekki önnur lönd, vísa mönnum út í opinn dauðann. Ég held að það sé stutta svarið við þessu.
En við vitum að við höfum haft hér einstaklinga sem hafa glímt við það mikla erfiðleika og verið ósakhæfir nánast og þau tilvik munu koma upp. Það fer eftir því hvernig staðan er í heimalandinu, en eins og hv. þingmaður nefnir, ef staðan er sú að það er lífshætta fyrir þann einstakling sem á að brottvísa, þá eru alþjóðlegir samningar sem segja okkur að við eigum ekki að brottvísa honum inn í þær aðstæður. Ég held að flestir séu sammála um það. En þetta eru tilfelli sem geta auðveldlega komið upp. Þegar hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er að tala um að við þurfum að taka allt kerfið og hugsa það betur þá held ég að þetta sé atriði sem við þyrftum að hugsa samhliða því, þegar við skoðum þetta allt saman betur. Hvað aðrar þjóðir gera, það er talað um kannski þriðja ríki, að hægt sé að gera samninga og komið fólki frá, þar sem er ódýrara að reka þessi úrræði heldur en hér á landi. Þetta eru kannski örfáir einstaklingar. Það getur verið dýrt að vera með úrræði hérlendis. Það er ódýrara að taka þátt í samstarfi við aðrar þjóðir. Það er langa svarið við þessu. Ég get ekki svarað betur, alla vega ekki að sinni.