157. löggjafarþing — 69. fundur,  10. feb. 2026.

útlendingar.

112. mál
[17:54]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Það var nú kannski pínulítið ósanngjarnt af mér að ætlast til að hv. þingmaður gæti svarað þessu með einföldum hætti. Þess vegna var kannski einmitt spurningin borin upp. Þetta er kannski ekki, eins og búið er að nefna hér, hin stóra lausn í einhverju stóru samhengi um stöðu útlendinga- og hælisleitendamála almennt, langt í frá. Þetta er hænuskref. Þetta er vissulega jákvætt hænuskref en þetta er lítið meira en það. Þess vegna held ég að það verði ekki mikil fyrirstaða við að veita þessu brautargengi hér í þinginu og hefði jafnvel verið enn þá ánægjulegra að taka þátt í slíkri afgreiðslu fyrir þessi jaðartilfelli sem hér um ræðir, ef meiri hlutinn hefði í vinnu hv. nefndar verið tilbúinn að — þó að viðkomandi meiri hluti hefði jafnvel eignað sér það, það gerir ekkert til — taka við skylduhugtakinu líka. Við vitum alveg hvernig lögfræði virkar þó að hvorugur okkar sé lögfræðingur, þegar kemur að því að fara að stilla upp máli sem matskenndu, þegar flinkir lögfræðingar taka á sig málið og munu leiða okkur fyrir sjónir að aðstaðan í þessu landi sé með þessum hætti eða heilsufar þessa einstaklings með öðrum hætti eða eitthvað slíkt. Við erum að búa til lengri fresti, fleiri kærur, meira flækjustig sem hefði verið hægt að koma í veg fyrir. Það var kannski ástæðan fyrir því að ég spurði þessarar spurningar, hv. þingmaður, en ekki vegna þess að ég ætlaðist til þess að hv. þingmaður hefði svörin öll á reiðum höndum strax.

Annað, af því að ég á örfáar sekúndur eftir, sem mig langar að spyrja hv. þingmann út í er að nú er bara staðreynd að á þinginu nú um stundir er líklega Evrópusinnaðasti flokkur Íslandssögunnar í ríkisstjórn. (Forseti hringir.) Með viðkomandi stjórnmálaflokki er annar flokkur sem stundum hefur verið allevrópusambandssinnaður þótt hann hafi reyndar ekki verið það í síðustu kosningabaráttu. Það er Samfylkingin, svo ég hjálpi hv. þingmanni með líkingamálið mitt. (Forseti hringir.) Svo er reyndar annar flokkur sem hefur verið algjörlega á móti. Þess vegna er mér hulin ráðgáta — ég biðst afsökunar, herra forseti — hvers vegna núverandi stjórnvöld vilja ekki ganga jafn langt og Evrópusambandið.