útlendingar.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágætisandsvar. Hér nefnir hv. þm. Þorgrímur Sigmundsson að honum sé hulin ráðgáta hvers vegna flokkurinn sem fer fyrir þessu máli, sem er mjög Evrópusinnaður, vilji ekki ganga jafn langt og Evrópusambandið. Ég held að okkur öllum í minni hlutanum sé þetta hulin ráðgáta. Það er algerlega óskiljanlegt að menn vilji ekki gera þetta. Að breyta heimild í skyldu hefði, held ég, ekki seinkað málinu mikið og hefði ekki skipt neinu máli, þó að þessu hefði kannski seinkað um örfáa daga við það að breyta frumvarpinu. Þetta er einhvers konar pólitík sem ég sjálfur myndi ekki vilja taka þátt í, og vona að ég geri það ekki, því að innst inni held ég að það sé mikill meiri hluti á þinginu fyrir þessari orðabreytingu. Ég held það. En það er eitthvað annað sem kemur í veg fyrir að þessi orðalagsbreyting verði. Það er eitthvað sem kallast þá bara pólitík. Við erum í pólitík hér í þessum sal og þá verða menn líka að taka afleiðingum þessarar pólitíkur sem menn sýna. Hér er allt tekið upp þannig að við vitum alveg hvað menn hafa sagt í pontu. Við sjáum hvað frumvarpið inniber og hvað það inniber ekki. Það er vonandi að almenningur sjái það líka.