útlendingar.
Virðulegur forseti. Já, við ræðum hér mál um afturköllun verndar, mál sem hefur reyndar verið til umræðu í alllangan tíma en af einhverjum óskiljanlegum ástæðum hefur þetta mál ekki enn farið í gegn vegna þess að stjórnarmeirihlutinn hefur ekki lagt áherslu á að þetta mál væri hér ofarlega á dagskrá eða fengi einhvers konar forgang.
Virðulegur forseti. Ég verð að fá að byrja samt á að nota aðeins tímann til að ræða það sem mér þykir mjög jákvætt. Mér finnst umræðan um alþjóðlega vernd og um málefni útlendinga í þessum þingsal komin á miklu betri stað en hún var fyrir örstuttu síðan. Mér heyrist vera mikill samhljómur um það að við viljum horfa til Norðurlandanna, læra af þeirra reynslu, því sem þau hafa gert vel en líka af þeirra mistökum. Mér heyrist hér vera mikill vilji til þess að reyna að fylgja eftir þeirri löggjöf eins og kostur er. Ég fagna sérstaklega þeim mjög svo breytta tón sem heyrist úr röðum Samfylkingarinnar og Viðreisnar í þessum málaflokki, því þetta var sko alls ekki staðan hér á síðasta ári. Ég heyri hér nefndarmenn úr hv. allsherjar- og menntamálanefnd lýsa góðu samstarfi í nefndinni. Það er nú reyndar samt svo að það hafa ekki mörg útlendingamál farið í gegnum nefndina. Ef ég er að telja rétt þá er þetta eina málið sem er komið í 3. umræðu og við erum að nálgast miðjan febrúar.
Virðulegur forseti. Ég verð, vegna ummæla hv. þm. Sigurjóns Þórðarsonar hér áðan, aðeins að fá að fara í gegnum söguna svo hér sé nú rétt farið með í ræðustól hæstv. Alþingis. Á vormánuðum 2024 boðaði hæstv. þáverandi dómsmálaráðherra, Guðrún Hafsteinsdóttir, að verið væri að skoða í hennar ráðuneyti hvernig hægt væri að innleiða nákvæmlega svona lög eins og við ræðum hér. Þau voru reyndar á þingmálaskrá hæstv. ráðherra þá um haustið en við vitum hvernig staðan er, það var fljótlega boðað til kosninga og málið náði þá ekki fram að ganga, náðist ekki að mæla fyrir því þá. Hæstv. ráðherra kemur svo með þetta mál hér 31. mars, á lokaframlagningardegi á síðasta vorþingi og þrátt fyrir samstöðu, þrátt fyrir yfirlýsingar hér frá stjórnarliðum um að þeir væru jákvæðir fyrir þessu máli þá er þetta ekki mál sem stjórnin ákvað að setja í einhvern forgang og setja hér á dagskrá þannig að hægt væri að afgreiða það. Það er á ábyrgð ríkisstjórnarflokkanna.
En vegna þess að hér var nefnt að Inga Sæland hafi lagt fram breytingartillögu þá finnst mér líka mikilvægt að fara yfir það mál því að ég lagði mikið á mig á sínum tíma í að vinna að framgangi breytinga á útlendingalögum, bæði frumvarps sem hæstv. þáverandi ráðherra, Jón Gunnarsson, kom með, svo og Guðrún Hafsteinsdóttir. Það þurfti mikla lagni og mikla vinnu í nefndinni til að ná slíku í gegn. Þá kom hér í lok 3. umræðu, kvöldið fyrir atkvæðagreiðslu, fram breytingartillaga frá þáverandi hv. þm. Ingu Sæland, eitthvað í átt við það sem við nú fjöllum um. Það hafði aldrei komið til tals frá fulltrúa Flokks fólksins inni í allsherjar- og menntamálanefnd, sem þá var núverandi hæstv. ráðherra, Eyjólfur Ármannsson, eitthvað á þessa leið og ég verð bara að viðurkenna að mér hafði ekki dottið það í hug. Það lá ekki fyrir í frumvarpsdrögum. Enginn umsagnaraðili hafði komið með þessa ábendingu og umræða hafði aldrei átt sér stað í nefndinni um þetta. Þess vegna, virðulegur forseti, skiptir svolítið miklu máli hvernig maður vinnur. Þessi breytingartillaga sem við erum hér að ræða í 3. umræðu lá fyrir fyrir 3. umræðu, lá fyrir fyrir atkvæðagreiðslu í 2. umræðu og nefndin hafði tækifæri til að fjalla um hana. Í mínum huga eru það góð vinnubrögð. Það eru vinnubrögð sem eru til þess fallin að stjórn og stjórnarandstaða geti sameinast um hlutina. Ég verð að viðurkenna að mér fannst umræðan hér eftir framlagningu þessarar breytingartillögu fyrst vera á þá leið að stjórnarliðar væru raunverulega tilbúnir að skoða þetta með okkur. Þess vegna hryggir mig að sjá að hér sé ekki nefndarálit frá allri nefndinni sem tekur undir þessa breytingartillögu og enn hef ég ekki heyrt rökin frá stjórnarliðum fyrir því af hverju svo er ekki. Ég vona að þau komi fram. Ég sé að hv. þm. Grímur Grímsson, sem ég hygg að eigi enn sæti í nefndinni, er að fara í ræðu á eftir og ég vona að þá verði farið yfir þau rök af hverju stjórnarliðar telja sig ekki geta fallist á að mínu mati mjög svo góðar breytingartillögur, tillögur sem eru til þess gerðar að gera gott mál enn betra og það á að vera hlutverk okkar hér á Alþingi, hvort sem það er í stjórn eða stjórnarandstöðu.
Virðulegur forseti. Mér er mjög umhugað um þessa breytingartillögu er lýtur að því að setja orðið skylda í staðinn fyrir heimild. Ég hefði gjarnan viljað að sú umræða hefði kannski vaknað fyrr eða nefndin hefði lagt meira á sig í þeim efnum því að ég heyri ekki annað á fulltrúum mínum í nefndinni og eins heyrði ég það þegar ég fór í andsvör við hv. þm. Snorra Másson að ráðuneytið virtist ekki í sínum svörum mæla neitt á móti þessari breytingu, kom ekki skýr afstaða svo um eða ábendingar um einhverja galla við það að færa þetta orðalag úr heimild í skyldu. Ég hefði líka gjarnan viljað heyra kannski afstöðu kærunefndar útlendingamála. Nú hefur það verið vandamálið, eða var alla vega stórt vandamál á síðasta kjörtímabili, ég vona að okkur hafi tekist með lagabreytingum og breyttu verklagi og breyttum lögum að létta mjög stabbann sem þar hefur verið, en ég t.d. myndi telja að það myndi auðvelda kærunefndinni mjög störf sín ef orðalagið í lögunum væri skylda en ekki heimild, því að ég er nokkuð viss um það að þessi mál verði alltaf kærð. Þau verða örugglega alltaf kærð.
Virðulegur forseti. Ég verð líka að vekja máls á því að ég tel þetta gott mál og ég fagna því mjög mikið að hæstv. dómsmálaráðherra sé kominn á línu okkar Sjálfstæðismanna að fylgja hér norrænum kollegum okkar og reyna að aðlaga lögin okkar hratt og vel að því sem er að gerast hjá nágrannaríkjunum okkar. En það að vilja ekki núna taka umræðuna um það að breyta þessu ákvæði í skylduákvæði fær mig líka til að spyrja hverju við erum nákvæmlega að ná fram með þessu frumvarpi, því að ég held að hæstv. ráðherra hafi kannski viðurkennt það þegar farið var í andsvör við hana að það er ekkert víst að þessum lögum verði beitt mjög oft. Við skulum bara vona ekki, því við skulum vona að hér sé almennt ekki mikið um glæpamenn og að fólk sem hér hafi hlotið vernd frá íslenskum stjórnvöldum, vernd til að fá að búa hér og starfa og stuðning frá íslenska ríkinu vegna ofsókna sem það hefur orðið fyrir í heimalandi sínu, taki upp á því að virða að vettugi okkar samfélagssáttmála og lög. En þegar svo ber undir er mikilvægt að hægt sé að bregðast við. Þetta frumvarp er liður í þá átt og mikilvægt skref. Ég held að það færi enn betur á því að verða við þessum breytingartillögum. En það þarf líka að vera hægt að senda viðkomandi aðila aftur til heimalandsins.
Þar kemur að því sem ég hef rætt hér við hæstv. ráðherra og spurt sérstaklega út í og er reyndar bara að undirbúa fyrirspurn til hæstv. ráðherra um það, því að ég hef ekki séð neinar fréttir þar að lútandi úr ráðuneytunum, er varðar samninga um endursendingar, því það er eitt að löggjöfin okkar sé í lagi en svo er ekki hægt að fljúga fólki bara, ég veit það ekki, til Palestínu eða Sýrlands og ýta fólki út úr flugvélinni og málið sé dautt. Það þarf að vera samkomulag við viðkomandi stjórnvöld í því landi til þess að það geti átt sér stað. Við vitum að við höfum ekki marga slíka samninga við stjórnvöld sem eru ósamvinnuþýð þegar að svona hlutum kemur. Ég get tekið dæmi, ég held að Íran hafi ekki tekið við neinum flóttamönnum, hvort sem þeir hafi fengið vernd og verið endursendir eða bara fá ekki vernd og þarf að endursenda af einhverjum ástæðum. Það eru fleiri lönd, víða í Afríku og á ýmsum stöðum, sem ekki hafa tekið á móti sínum ríkisborgurum þegar lönd hafa ekki viljað samþykkja alþjóðlega vernd. Þess vegna er þetta eitt af því sem nágrannalöndin okkar hafa lagt sig fram við að ná samningum um. Ég held að það sé mjög mikilvægt að íslensk stjórnvöld beiti sér líka fyrir slíkum samningum, hvort sem er sér eða í samstarfi við hin Norðurlöndin.
Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að hafa þetta neitt mikið lengra. Ég styð málið í heild sinni. Hér eru samt breytingartillögur sem eru til þess fallnar að gera málið enn betra og það hryggir mig svolítið að heyra ekki málefnalegar umræður um þær breytingartillögur og að stjórnarliðar — ég tala nú ekki um kannski þá flokka sem hafa verið fylgjandi stefnu Sjálfstæðisflokksins í útlendingamálum og þeim breytingum sem við höfum gert á síðustu árum, eins og Flokkur fólksins, sem var þó einn flokka í stjórnarandstöðu sem studdi ávallt breytingar á útlendingalögunum — vilji ekki núna ganga lengra og skýra þetta ákvæði frekar varðandi heimildarákvæðið í skylduákvæði, sérstaklega vegna þess að ég get ekki betur séð, virðulegur forseti, af því að lesa mig í gegnum það sem kann að vera í vændum í Evrópulöggjöfinni um útlendinga, eða sem sagt verndarpakka ESB sem mjög hefur verið til umræðu, en að það verði í einhverjum tilfellum þörf á því að hafa skylduákvæðið inni. Þá fer ég, virðulegur forseti, að velta fyrir mér: Er þetta einhver einstrengingslegur háttur hér hjá stjórnarliðum að bara vilja aldrei samþykkja breytingartillögu frá minni hlutanum? Við vorum hér með breytingartillögu t.d. við fæðingarorlofslöggjöfina. Það var ekki séns að fá meiri hlutann til að styðja þær breytingartillögur en ráðherra kom svo með slíkt frumvarp fram í haust sem við jú studdum. Ég hef auðvitað ítrekað verið með breytingartillögur í öðrum málum sem hafa verið í þessari nefnd og féll reyndar góðfúslega frá slíkri breytingartillögu hér með loforði um að frumvarpið mitt um dreifingu ösku myndi ná hér inn í 2. umræðu. En ég velti fyrir mér, vegna þess að ég hef heyrt svo fallegar ræður fluttar hér af stjórnarliðum um einmitt að vilja horfa til þess að hér geti allir lagt eitthvað af mörkum og horfa málefnalega til þeirra breytingartillagna sem hér koma fram — þess vegna þyrstir mig í umræðu, mig þyrstir í svör frá meiri hlutanum við því af hverju þau telji þessar breytingartillögur sem hér eru bornar fram ekki góðar og ekki til þess fallnar að gera bara ágætisfrumvarp enn betra.