útlendingar.
Herra forseti. Við breytum ekki sögunni en við getum haft áhrif á framtíðina. Mér finnst að við eigum kannski að haga okkar störfum í samræmi við það. Það er alveg ljóst að frá árinu 2015 eða svo, þegar breytingin sem gekk í gegn um útlendingalögin þá, hún hafði veruleg áhrif á fjölgun hælisleitenda og við erum að einhverju leyti að súpa seyðið af því. Það er líka alveg ljóst að þeir flokkar sem voru á móti breytingum eru nú jafnvel að boða breytingar og þessi ríkisstjórn sem núna er við lýði er að leggja mun fleiri mál fram en gert hefur verið lengi. Menn horfast í augu við vandann og eru að taka á honum. Mér finnst mikilvægt að ræða þetta með jákvæðum hætti. Það er alveg ljóst að það hafa verið gerð stór mistök af fyrri ríkisstjórnum og við erum að einhverju leyti að eiga við þann vanda núna. Mér finnst mikilvægt að fólk sýni hvert öðru sanngirni í þessari umræðu. Það hefur verið farið yfir, m.a. af hv. þm. Guðmundi Ara Sigurjónssyni, að þessi breytingartillaga geti jafnvel valdið því að eitthvað geti fallið á milli sem ekki er talið upp sem alvarlegir glæpir, þannig að það getur verið kostur að þetta sé að einhverju leyti matskennt. Það séu einfaldlega góð rök fyrir því að hafa það með þessum hætti því að önnur breyting gæti mögulega kallað á heildarendurskoðun laga. Það er verk að vinna í þessum málaflokki og mér finnst að við eigum að sameinast um það hér að setja þennan málaflokk á oddinn og gera það vel.