157. löggjafarþing — 69. fundur,  10. feb. 2026.

útlendingar.

112. mál
[18:14]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Í því fólst reyndar ekki spurning en mörg ágætisorð, sum svona óljósari, fyrirgefið, ég veit ekki hvað hv. þingmaður er að vísa í, að hv. þm. Guðmundur Ari Sigurjónsson hafi farið ágætlega yfir eitthvað í breytingartillögum. Hv. þingmaður fór í andsvar og ég skildi ekkert hvað viðkomandi þingmaður sagði. En ég hygg að annaðhvort hv. þm. Guðmundur Ari Sigurjónsson eða aðrir þingmenn í hv. allsherjar- og menntamálanefnd geti farið hér ögn ítarlegar og betur yfir þeirra rökstuðning fyrir að vilja ekki samþykkja þessa breytingartillögu.

Nei, við breytum ekki sögunni, það er alveg rétt. Ég tek undir það að þessi málaflokkur hafi farið í óefni. Það er alveg kórrétt og á því sama tímabili var Sjálfstæðisflokkurinn við völd og fór með þetta ráðuneyti, enda lögðu ráðherrar Sjálfstæðisflokksins ítrekað fram frumvörp hér á Alþingi til að breyta þessum lögum. Þá var enginn stuðningur, enginn meirihlutastuðningur við það hér í þinginu, enda hef ég ítrekað farið yfir það að ég fagna því mjög hvað breytt hljóð er komið í Samfylkinguna og Viðreisn hvað þessi mál varðar, hvað raunsæið er orðið mun meira en var hér bara fyrir örfáum mánuðum. En hv. þingmaður sagði einmitt að við skyldum horfa til framtíðar og það er einmitt það sem við erum að gera, horfa til framtíðar. Þess vegna verð ég að spyrja hv. þingmann: Af hverju er hann mótfallinn því að breyta orðinu heimild, að það sé heimilt að afturkalla vernd glæpamanna í að það sé skylda? Af hverju telur hv. þingmaður þörf á því að lagaákvæðin séu ekki skýrari? Er ekki betra að vera alveg skýr á því að ef um dæmdan brotamann í alvarlegum brotum er að ræða þá á hann ekki vernd í íslensku samfélagi? Er hv. þingmaður ósammála þeirri nálgun?