157. löggjafarþing — 69. fundur,  10. feb. 2026.

útlendingar.

112. mál
[18:16]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Hér hafa verið haldnar ýmsar ræður einmitt um þetta og sumir þingmenn hafa jafnvel dregið í efa hæfi dómstóla til að ráða við þetta verkefni, að það sé að einhverju leyti kerfisins að meta það. Það geta verið ákveðnir kostir við að hafa þetta með þessum hætti. Síðan er það auðvitað alveg ljóst að ef menn eru að koma með breytingartillögur á síðari stigum — auðvitað er rétt að fara yfir það, fara yfir þessa umræðu og við í Flokki fólksins munum auðvitað skoða þetta mál og meta það. Ef við teljum, eftir að hafa farið yfir málið í heild sinni, þessar ræður og umræður, að þetta sé til mikilla bóta þá kemur auðvitað til greina að greiða atkvæði með góðum málum. Þannig eigum við auðvitað að horfa á þessa umræðu sem fram fer hér í þinginu en það verður bara að koma í ljós. Það verður farið yfir þetta mál og ég vænti þess að við gerum það. Auðvitað er aðalatriðið í þessu að við horfum til framtíðar í þessum málaflokki. Önnur lönd eru að herða þessar reglur og við verðum að horfa til þess svo að við fáum ekki hér miklu meiri fjölgun hvað varðar hælisleitendur eins og hefur verið á síðastliðnum árum. Ef maður ber saman það sem hefur komið hingað og hin Norðurlöndin þá eru hlutfallslega fleiri að koma hingað. Þess vegna fagna ég því að þetta mál sé loksins á lokametrunum. Mér hefur þótt miður að þetta hafi ekki gengið fyrr fyrir sig. Ég vona svo sannarlega að þingmenn allir taki það að einhverju leyti til sín að greiða fyrir góðum málum en séu ekki að tefja öll mál, jafnvel mál (Forseti hringir.) sem menn eru sammála um.