útlendingar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur andsvarið og hvet hann til að horfa til framtíðar. Ég hygg á orðum hans að hann hafi greinilega ekki skoðað þessa breytingartillögu og þingflokkur Flokks fólksins hafi kannski ekki mótað sér afstöðu til þessarar breytingartillögu en sé tilbúinn að skoða hana með opnum augum. Ég bara vona það og vænti þess að sá flokkur, sem er kannski sá flokkur í ríkisstjórn sem studdi okkur Sjálfstæðismenn hér á síðasta kjörtímabili í því að breyta í útlendingalöggjöfinni, sé tilbúinn að horfa á það sem við erum að leggja fram. Ég bara vona og vænti þess að fá alla vega stuðning frá hv. þingmanni við þessa breytingartillögu því að hv. þingmaður fer einmitt yfir að við þurfum að horfa til þess sem hin löndin eru að gera. Eins og ég sagði í ræðu minni þá get ég ekki betur skilið en að Evrópulöggjöfin gangi einmitt út á það að skylda lönd til að afturkalla alþjóðlega vernd þegar um ákveðna glæpi er að ræða. Hér er maður að rétta fram hjálparhönd, hér eru að koma tillögur að breytingum og ég ætla bara að vísa á bug allri þeirri umræðu — ég veit að hv. þm. Sigurjón Þórðarson er einn af þeim stjórnarliðum sem eru duglegir við að fara reglulega upp og básúna eitthvað um að fólk sé hér í málþófi. Ef fólk ætlar að túlka ræðu mína sem málþóf, þ.e. málefnalega yfirferð um þetta mál, breytingartillögu og að ég tali fyrir breytingartillögu og kalli eftir umræðu við stjórnarliða og rökum frá þeim um af hverju þeir eru henni ósammála, þá veit ég ekki til hvers við erum yfir höfuð hér í sölum Alþingis að ræða löggjöf. Ég ætla bara að minna hv. þingmenn á mikilvægi þessa þingsalar, mikilvægi þessarar málstofu, mikilvægi þess að við virðum stjórnarskrána, að þingmál fái þrjár umræður og að þingmenn leggi eitthvað af mörkum, bæði inni í nefndum og hér í þingsal. Það er einfaldlega það sem fulltrúar Sjálfstæðisflokksins eru að gera hér í dag.