157. löggjafarþing — 69. fundur,  10. feb. 2026.

útlendingar.

112. mál
[18:20]
Horfa

Grímur Grímsson (V):

Herra forseti. Ég ætla að byrja á því að þakka fyrir þá umræðu sem hér hefur farið fram og sérstaklega vil ég þakka hv. þm. Sigurði Erni Hilmarssyni fyrir framsögu nefndarálits 1. minni hluta allsherjar- og menntamálanefndar. Ég ætla nú kannski í upphafi að fara bara í mjög stuttu máli yfir það hvað þetta frumvarp varðar raunverulega. Það er búið að koma fram hér oftar en einu sinni að þetta er ekki frumvarp sem er, verði það að lögum, að fara að breyta mjög miklu varðandi útlendinga hér á landi. Þó varðar frumvarpið reglur sem er eðlilegt að hafa í samræmi við reglur nágrannalandanna.

Í fyrsta lagi er í 1. gr. frumvarpsins verið að fjalla um breytingu á orðalagi sem varðar rétt til alþjóðlegrar verndar, þ.e. fyrir þá sem sækja hér um alþjóðlega vernd. Í 2. mgr. 40. gr. laga um útlendinga er fjallað um þá sem eiga ekki rétt á því, þ.e. í 2. mgr. er fjallað um þá sem sækja hér um alþjóðlega vernd en eiga ekki rétt á henni í samræmi við 1. mgr. Í þeirri málsgrein segir svo í núgildandi lögum, með leyfi forseta:

„Ákvæði 1. mgr. gildir þó ekki um: […]

c. flóttamann skv. 2. mgr. 37. gr., ef skynsamlegar ástæður eru til að álíta hann hættulegan öryggi ríkisins eða hann hefur hlotið endanlegan dóm fyrir mjög alvarlegt afbrot og er af þeim sökum hættulegur samfélaginu“.

Í frumvarpinu eins og það liggur fyrir núna segir, í staðinn fyrir þetta sem ég las um flóttamenn skv. 2. mgr. 37. gr.:

„flóttamann ef gildar ástæður eru til að álíta hann hættulegan öryggi ríkisins, hann hefur hlotið endanlegan dóm fyrir alvarlegt afbrot og er af þeim sökum hættulegur samfélaginu eða hann hefur verið dæmdur fyrir ítrekuð afbrot sem ógna allsherjarreglu eða almannaöryggi.“

Þetta er breytingin í 1. gr. frumvarpsins. Það er mikilvægt að fara yfir þetta vegna þess að þetta varðar þá sem eru að sækja um alþjóðlega vernd og þetta eru þá þeir sem eru útilokaðir eftir atvikum frá því að fá alþjóðlega vernd. Það er verið að fella 2. mgr. 37. gr. úr ákvæðinu sem þýðir að þetta eigi við flóttamenn samkvæmt 1. og 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga en 1. mgr. 37. gr. laganna varðar einstaklingsbundin atriði flóttamanns. Síðan varðar 2. mgr. svokallaða viðbótarvernd ef viðkomandi kann að vera hætta búin í landinu sem hann kemur frá. 2. mgr., svokölluð viðbótarvernd, þetta hefur átt við um hana en ekki um flóttamann skv. 1. mgr. Hér er verið að breyta því.

Sama á við um 3. gr. frumvarpsins, þ.e. afturköllun alþjóðlegrar verndar. Þá er verið að breyta ákvæðum 48. gr. laganna um afturköllun alþjóðlegrar verndar. Ég ætla fyrst að fá að lesa, með leyfi forseta, 3. mgr. 48. gr. eins og hún er nú í lögunum:

„Heimilt er að afturkalla veitingu alþjóðlegrar verndar ef í ljós kemur að útlendingi sem fellur undir ákvæði 1. eða 2. tölul. b-liðar 2. mgr. 40. gr. eða 1. eða 2. tölul. c-liðar 41. gr. hefur verið veitt alþjóðleg vernd hér á landi.“

Ef einhver er búinn að fá verndina, þá er sem sagt heimilt að afturkalla hana. Þá er breytingin sú í frumvarpinu að eftirfarandi kemur á eftir þessari málsgrein:

„Heimilt er að afturkalla veitingu alþjóðlegrar verndar ef gildar ástæður eru til að álíta útlending hættulegan öryggi ríkisins, hann hefur hlotið endanlegan dóm fyrir alvarlegt afbrot og er af þeim sökum hættulegur samfélaginu eða hann hefur verið dæmdur fyrir ítrekuð afbrot sem ógna allsherjarreglu eða almannaöryggi.“

Ég er hér að undirstrika að í ákvæðunum eins og þau eru nú í lögunum er talað um heimild. Það er sem sagt heimilt að afturkalla alþjóðlega vernd. Breytingin varðar það að það er verið að bæta við þeim sem eru flóttamenn skv. 1. mgr. 37. gr. laganna.

Í þriðja lagi er í frumvarpinu felld úr lögunum svokölluð 18 mánaða regla sem varðar í stórum dráttum umsækjanda um alþjóðlega vernd sem ekki hefur fengið úrlausn sinna mála á 18 mánuðum en fyrir liggur að hann getur ekki fengið alþjóðlega vernd — eða eins og segir í núgildandi ákvæði, með leyfi forseta:

„Heimilt er að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, geti hann sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Ákvæði þessu skal ekki beitt nema skorið hafi verið úr um með efnismeðferð að útlendingur uppfylli ekki skilyrði alþjóðlegrar verndar skv. 37. og 39. gr.“

Sem sé, hér er verið að fella út úr lögunum þessa svokölluðu 18 mánaða reglu sem hefur verið nokkuð íþyngjandi fyrir Útlendingastofnun.

Í fjórða lagi er með þessu frumvarpi bætt inn nýrri grein, 77. gr. a, sem varðar umborna dvöl. Í stórum dráttum varðar umborin dvöl þá sem hafa verið sviptir alþjóðlegri vernd en ekki er hægt að senda til síns heimaríkis vegna þess hvernig ástandið er þar. Það á t.d. við um þar sem enn er stríðsástand eða viðkomandi er eftir atvikum hætta búin persónulega. Þetta eru þau atriði sem þetta frumvarp varðar í stórum dráttum.

Frumvarpið hefur fengið mjög góða umfjöllun í hv. allsherjar- og menntamálanefnd. Svo því sé nú haldið til haga þá var mælt fyrir frumvarpinu 23. september 2025. Það er tekið fyrir á fundum 24. september, 7. október, 23. október, 4. nóvember, 10. nóvember, 11. nóvember, 18. nóvember, 20. nóvember, 2. desember og 4. desember. 5. desember er síðan nefndarálitið dagsett. Þing kom saman 14. janúar og á þeim tímapunkti var nú allsherjar- og menntamálanefnd í, hvað eigum við að kalla það, námsferð eða kynnisferð í útlöndum og það var því ekki á dagskrá þeirrar viku. Það líða samt sem áður tvær vikur frá því að þing kemur saman þangað til þetta frumvarp er tekið á dagskrá. Það er tekið á dagskrá 28. janúar í 2. umræðu og það er framhald 2. umræðu 29. janúar. Það er síðan atkvæðagreiðsla 2. febrúar og það gengur til allsherjar- og menntamálanefndar á milli 2. og 3. umræðu. Það er afgreitt úr allsherjar- og menntamálanefnd 4. eða 5. febrúar, ég gat ekki alveg fundið það. Það er síðan búið að vera á dagskrá í gær og í dag. Þess vegna les ég þetta nú upp, þennan kafla, vegna þess að mér er eiginlega bara um og ó, umræðan um það að þetta mál hafi á einhvern hátt ekki fengið góða umfjöllun og einhvern veginn verið að halda því frá þinginu, mér finnst það bara (Gripið fram í.) stórkostlegt — og ég vil gjarnan fá að hafa orðið hér meðan ég er í pontu.

Síðan hefur hér komið fram breytingartillaga og ég verð að segja það alveg eins og er standandi hér, og get ekki annað, að mér eiginlega sárnar hálfpartinn þessi umræða um þessa breytingartillögu því að það er alveg af og frá að ekki hafi verið á hana hlustað eða hún hafi ekki verið tekin fyrir. Hún var tekin fyrir á fundi allsherjar- og menntamálanefndar í síðustu viku og meiri hlutinn ákvað að hann vildi ekki taka þessa breytingartillögu inn í sitt nefndarálit eða gera nýtt nefndarálit. Ég bara átta mig ekki á viðkvæmni fyrir þessari afstöðu meiri hlutans sem er á engan hátt stefnt gegn minni hluta allsherjar- og menntamálanefndar eða minni hlutanum hér á Alþingi. Það er ekkert torkennilegt við það að fallast ekki, eftir atvikum, á breytingartillögu frá minni hluta. Það er bara af einhverjum ástæðum sem við teljum svo vera sem ég ætla að fara aðeins yfir.

Eins og ég las hér upp áðan varðandi frumvarpið eins og það er þá er ákvæðið núna heimildarákvæði. Það er heimilt að afturkalla alþjóðlega vernd. Það er verið að útvíkka þetta heimildarákvæði þannig að alþjóðleg vernd eigi ekki bara við um að það sé hægt að afturkalla hana gagnvart þeim sem hafa viðbótarvernd heldur gagnvart öllum sem hafa alþjóðlega vernd, líka þeim sem við köllum flóttamenn samkvæmt flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna. En það er dálítið merkilegt að það sé gerð krafa um að við breytum heimildarákvæði í skylduákvæði þegar afturköllun verndar byggist á matskenndum atriðum.

Ég ætla að fá að renna hér yfir atriðið eins og það er. Ef við myndum fallast á að þetta ætti að vera skylda þá stæði þetta svona: Afturkalla skal veitingu alþjóðlegrar verndar ef gildar ástæður — það er nú svolítið matskennt hvað eru gildar ástæður — eru til að álíta — aftur kemur hér matskennt atriði — útlending hættulegan öryggi ríkisins, hann hefur hlotið endanlegan dóm fyrir alvarleg afbrot — það er líka matskennt — og er af þeim sökum hættulegur samfélaginu eða hann hefur verið dæmdur fyrir afbrot sem ógna allsherjarreglu eða almannaöryggi. Aftur koma matskennd atriði. Ástæðan fyrir því að við vildum ekki breyta þessu í skyldu er að það er heimildarákvæði í lögunum og það er ákveðin framkvæmd til um það hvernig fólki er brottvísað frá landinu. Ef ég fæ bara að lesa hér upp, þetta á við t.d. um 40. gr. og 48. gr. Þetta á líka við t.d. um 95. gr. útlendingalaga. Hún varðar brottvísun EES- eða EFTA-borgara eða aðstandanda hans:

„Heimilt er að vísa EES- eða EFTA-borgara eða aðstandanda hans úr landi ef það er nauðsynlegt með skírskotun til allsherjarreglu, almannaöryggis eða almannaheilbrigðis.“

Það eru sum sé í lögunum ýmis ákvæði sem heimila Útlendingastofnun að hefja mál þar sem viðkomandi er vísað úr landi. Við höfum talað um þetta við Útlendingastofnun og sama ætla ég að verði niðurstaðan þegar og ef einhverjum verður brottvísað vegna þess að ef við ætlum að byggja upp mál sem varðar afturkallaða alþjóðlega vernd þá verður það gert með sömu atriðum og gegnir sömu framkvæmd, það verður notuð sama framkvæmd og er notuð varðandi önnur atriði í þessum lögum. Hér erum við einfaldlega komin að þessum grundvallaratriðum í þessu máli. Það er á engan hátt verið að fallast ekki á með engum rökum að hafa þetta skylduákvæði heldur á að halda sig við þessi heimildarákvæði einfaldlega af þessum ástæðum. Ég segi það bara aftur: Að sitja undir því að því sé að einhverju leyti beint gegn minni hlutanum er bara rangt. Með þessu ætla ég að láta máli mínu lokið.