157. löggjafarþing — 69. fundur,  10. feb. 2026.

útlendingar.

112. mál
[18:35]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég ætla að byrja á því að fá að þakka hv. þm. Grími Grímssyni fyrir ræðuna og nefna mikilvægi þess að fulltrúar meiri hlutans komi einmitt hér upp og taki samtalið. Ég held að það sé ofboðslega mikilvægt en mér finnst eins og hv. þingmaður hafi verið eitthvað móðgaður yfir gagnrýni okkar og hvet hann til að vera það ekki. Hér eigum við í þessum ræðustól einmitt að takast á um málefnin. Ég spyr þá bara hv. þingmann: Telur hv. þingmaður að þeir sem brjóti af sér, og, eins og segir í ákvæðinu, gerist sekir um alvarleg eða ítrekuð brot á hegningarlögum, þar með talið brot gegn stjórnskipan ríkisins og æðstu stjórnvöldum þess og brot gegn valdstjórninni, telur hv. þingmaður að slíkir aðilar sem hér hafa hlotið alþjóðlega vernd, að það eigi að afturkalla slíka vernd eða telur hv. þingmaður í einhverjum tilfellum að svo eigi ekki að vera? Það er fyrsta spurningin mín. Önnur spurningin er: Ef EES-reglugerð kemur hér og við tökum hana upp þar sem stendur að það skuli skylt að afturkalla alþjóðlega vernd við þessi skilyrði, styður hv. þingmaður þá slíkar breytingar?