157. löggjafarþing — 69. fundur,  10. feb. 2026.

útlendingar.

112. mál
[18:37]
Horfa

Grímur Grímsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur kærlega fyrir hennar andsvar. Fyrsta spurningin var: Telur sá sem hér stendur að það eigi að afturkalla vernd þess sem er í þeirri aðstöðu eins og lýst er í frumvarpinu? Svarið við því er já. Varðandi ESB-reglurnar, og áður en ég svara spurningunni, þá segir í greinargerðinni með frumvarpinu á bls. 3, undir kafla 2, Tilefni og nauðsyn lagasetningar, frekar neðarlega, með leyfi forseta:

„Ísland, sem þátttakandi í Schengen-samstarfinu, er ekki skuldbundið af heildarstefnu Evrópusambandsins í útlendingamálum og almennum málsmeðferðarreglum sambandsins er varða alþjóðlega vernd.“

Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir að hafa komið þessu að vegna þess að ég gleymdi þessu áðan. Þetta er einmitt grundvallaratriði varðandi sumar þær ræður sem hér hafa verið haldnar varðandi þetta, að við erum ekki bundin af þessu. Það þýðir ekki að við tökum ekki tillit til þess. Við höfum tekið tillit til þess og við ætlum að taka tillit til þess, að vera með sambærilegar reglur. Það stendur ekki að við ætlum að vera með sömu reglur heldur sambærilegar reglur. Komi til þess að við myndum taka upp, ef það væri gert með tilliti til þessa ákvæðis í reglum ESB, þá styð ég það með sama hætti og tel að við eigum að afturkalla vernd þeirra einstaklinga sem brjóta af sér og eru með þá stöðu sem lýst er í frumvarpinu.