157. löggjafarþing — 69. fundur,  10. feb. 2026.

útlendingar.

112. mál
[18:39]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég er glöð að heyra að hv. þingmaður er sammála mér í því að þeir sem hér hafa hlotið alþjóðlega vernd og brjóta íslensk lög ítrekað eða fremja alvarlega glæpi að það beri að afturkalla þá vernd. Ég heyri að ég og hv. þingmaður erum sammála í því og því fagna ég. En þá skil ég ekki af hverju það er ekki bara einfalt að kveða skýrt á um það í lögunum. Og þegar hv. þingmaður vísar í umrædda lagagrein þar sem er þessi afturköllun verndar er hún vissulega heimild undir alls konar kringumstæðum en það að fremja alvarlegan glæp eru bara mjög sérstakar aðstæður þannig að ég skil ekki alveg togstreituna við það að kveða öðruvísi að orði í þeirri grein og segja bara: Það er skylt að afturkalla vernd þegar viðkomandi aðili fremur alvarlegan glæp. Í hinu tilfellinu eru það bara alls konar aðrir hlutir, hvort fólk hafi fengið vernd í öðru ríki, hafi fengið ríkisfangið aftur frá sínu heimaríki eða eitthvað annað og það er bara öðruvísi mál. Ég, fyrirgefðu, næ ekki alveg rökunum á bak við það að vegna þess að það er heimilt í slíkum aðstæðum að afturkalla alþjóðlega vernd þurfi að nota nákvæmlega sama orðalag, heimilt, í þessu ákvæði því þarna erum við að tala um glæpamenn. Við erum að tala um dæmda menn fyrir alvarlegan glæp. Kannski vill hv. þingmaður kveða enn fastar að orði í því.

En svo verð ég að viðurkenna að það er áhugavert að heyra þingmann Viðreisnar tala um að við séum ekki skuldbundin heildarstefnu Evrópusambandsins í útlendingamálum. Það er gott að við getum líka kallað það fram að við erum ekki skuldbundin því og sú sem hér stendur ætlar svo alls ekki að stíga það skref að styðja inngöngu í Evrópusambandið þannig að við værum einmitt skuldbundin til þess. En í þessum málaflokki vil ég gjarnan horfa til þessara laga og reglna sem þar eru í gildi og mér finnst mikilvægt að það sé gert. Þess vegna velti ég líka fyrir mér að ef hér kemur aftur eftir hálft ár frumvarp frá sama ráðherra (Forseti hringir.) sem notar orðið skylt vegna þess að það hefur farið í gegnum Brussel og Evrópusambandið, að þá ætli hv. þingmenn að styðja það á þeim forsendum vegna þess að það kom frá Brussel en ekki frá minni hlutanum.