útlendingar.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir hennar seinna andsvar. Ég hygg að hv. þingmaður vilji að þetta sé áfram miðað við skyldu við tilteknar aðstæður. En það sem ég var að reyna að anda út úr mér áðan og tókst kannski ekki var að við erum með heimildarákvæði vegna þess að við erum með matskennda mælikvarða og matskennd atriði um það hvenær á að afturkalla. Þegar við t.d. metum það að það séu gildar ástæður, álítum útlending hættulegan öryggi ríkisins fyrir alvarlegt afbrot og hann af þeim sökum hættulegur samfélaginu að hann ógni allsherjarreglu eða almannaöryggi. Málsmeðferðarreglurnar hjá Útlendingastofnun eru með þeim hætti, ef ég horfi til þess varðandi önnur atriði í lögunum eins og varðandi brottvísun EES-borgara og EFTA-borgara sem hafa gerst brotlegir hér, að tekið er tillit til þessara matskenndu atriða. Það er gert t.d. áhættumat og ýmislegt þess háttar. Ég hygg að þetta yrði gert með þeim hætti að lögreglan myndi vekja athygli á því eftir reglum Útlendingastofnunar sem eru settar um það að ákveðinn einstaklingur sem nýtur hér alþjóðlegrar verndar hefði gerst brotlegur við lög með ákveðnum hætti. Þá færi fram mat á því hvort það væri komið efni til þess að brottvísa honum, þannig að ég sé ekki hvernig við komum að þessari skyldu þegar við erum með þessa matskenndu mælikvarða.