157. löggjafarþing — 69. fundur,  10. feb. 2026.

útlendingar.

112. mál
[18:43]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Grími Grímssyni fyrir sína ræðu. Það var margt gott í henni eins og þingmanninum er von og vísa. Hér kom fram í í ræðunni eitthvað á þá leið að meiri hlutinn hefði verið að gera eitthvað á hlut minni hlutans. Það er alfarið rangt, svo að það sé bara sagt hér í pontu. Það var mjög gott samstarf í nefndinni.

Það sem mig langar að spyrja hv. þingmann um eru þessi orð, skylda og heimild, munurinn á því tvennu. Það er algerlega rétt hjá hv. þingmanni, það eru matsatriði í lögunum eins og hann fór vel yfir hér áðan. En mig langar að spyrja hv. þingmann, burt séð frá matsatriðunum, hvort það sé ekki ákveðinn áferðarmunur á því að hafa orðið skylda inni í þessari grein? Það þarf ekki að breyta því alls staðar. Og hvort það séu ekki önnur skilaboð, ég ætla ekki að segja gjörólík skilaboð, heldur önnur skilaboð, þrátt fyrir þessa matskenndu þætti eins og gildar ástæður og alvarleg afbrot og það allt, sem eru vissulega matskennd atriði? Bara það að hafa orðið skylda þarna inni, hvort það sé ekki önnur áferð og önnur skilaboð sem kæmu þá fram í frumvarpinu en ef það er ekki?