útlendingar.
Herra forseti. Ég þakka kærlega fyrir þetta andsvar frá hv. þm. Jóni Pétri Zimsen. Ég vil kannski bara árétta það að þó svo að ég hafi sagt hér áðan að mér sárnaði þá var það ekki þannig að ég myndi missa svefn yfir því.
Ég get alveg tekið undir að það er áferðarmunur á því að tala um skyldu eða heimild. Það er hins vegar þannig, og kannski finnst mönnum það létt í vasa, að það er ákveðin samræming innan laganna, að Útlendingastofnun eða þeir sem að þessum málum koma varðandi ýmis ákvæði þessara laga — það er fjallað um heimild. Það er á engan hátt verið að horfa til þess að það væri eitthvað erfitt að breyta heimild í skyldu, það er ekki í mínum huga þannig. Heldur er þetta bara þannig, eins og þessu var lýst fyrir okkur í ráðuneytinu, að þó svo að talað væri um heimild þá væru tiltekin skilyrði. Þegar skilyrðin á hinum matskenndu mælikvörðum eru þannig að viðkomandi hefur brotið af sér með alvarlegum hætti og er ógn við almannaöryggi og allsherjarreglu þá er í raun komin skylda til að brottvísa. Þannig lít ég á og þannig var það skýrt fyrir okkur. En ég tek undir, ég skal alveg taka undir það, að það myndu væntanlega vera önnur skilaboð varðandi hælisleitendur sem ættu að missa alþjóðlega vernd vegna þess að þeir hefðu brotið alvarlega af sér. Það væri þá ósamræmi miðað við t.d. EFTA- og EES-borgara sem hefðu brotið alvarlega af sér og ætti að brottvísa, það væri þá heimild til þess en ekki skylda.