útlendingar.
Herra forseti. Forseti ætlaði að hækka mig þarna í tign, gera mig að 10. þingmanni, alveg til í það. Takk fyrir andsvarið, hv. þm. Grímur Grímsson. Þarna met ég bara það að skilaboðin og áferðin vegi þyngra en samræmið. Út á það gekk ræðan mín hér í pontu áðan mestmegnis og svo ákveðna pólitík, hvernig pólitíkin getur þróast og þroskast.
Það sem mig langar að spyrja hv. þingmann í seinna andsvari mínu er — kannski svaraði hv. þingmaður, ég er samt ekki alveg viss — hvort það að breyta orðinu heimild í skylda krefjist heildarendurskoðunar á lögunum? Ég held að svo sé ekki og ég held að þingmaður sé nú þar líka.
Svo langar mig að fá hv. þingmann til að rifja upp fyrir mér, vegna þess að hann er hafsjór þekkingar í þessum málaflokki, eða spá fyrir um hversu marga einstaklinga þessi lög munu hafa áhrif á, án þess að maður dragi hann til einhverrar ábyrgðar gagnvart því, hvort hann geti metið það fyrir þingheim og alþjóð hversu marga einstaklinga þetta mun mögulega hafa áhrif á, með skekkjumörkum að sjálfsögðu.