157. löggjafarþing — 69. fundur,  10. feb. 2026.

útlendingar.

112. mál
[18:49]
Horfa

Grímur Grímsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir hans seinna andsvar. Ég er reyndar þeirrar skoðunar að það færi betur á því, ef það er skylda einhvers staðar, að hún sé látin ná yfir sambærileg tilvik í lögunum. Ég segi það bara að það er ekkert ómögulegt að breyta lögum með þeim hætti að þau séu endurskoðuð með það í huga að það séu skylduákvæði sem hingað til hafa verið heimildarákvæði. Ég ítreka það að málsmeðferðarreglur og framkvæmd hjá Útlendingastofnun er með ákveðnum hætti sem ég held að hafi ekkert verið bornar brigður á og þarf ekki að bera brigður á. Mér finnst mjög líklegt að þegar það kemur til þess að menn ætli að fara að afturkalla vernd þá hljóti menn að horfa til þeirra málsmeðferðarreglna sem hafa verið í sambærilegum málum, eins og t.d. þegar verið er að brottvísa EFTA- eða EES-borgurum.

Nú þarf ég eiginlega hjálp. (Gripið fram í: Fjöldinn. )Fjöldinn. Eins og ég fór hér yfir áðan var málsmeðferð þessa máls bara mjög góð og nákvæm og við fengum á okkar fund bæði fólk frá ráðuneytinu og Útlendingastofnun. Ég hygg að þetta séu að hámarki tíu manns á ári sem þetta getur átt við um.