157. löggjafarþing — 69. fundur,  10. feb. 2026.

útlendingar.

112. mál
[18:50]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Herra forseti. Þetta er gott mál, segja margir, en ég er í auknum mæli að velta því fyrir mér hvort þetta sé raunverulega gott mál. Jú, áhrifin af málinu eru heldur til bóta en áhrifin, eins og kom fram hér, bara í lok síðasta andsvars, eru afskaplega lítil ef þessu verður þá beitt yfir höfuð. Þetta er með öðrum orðum mál sem mun hafa mjög lítil áhrif en það er búið að eyða óhemjutíma í að fjalla um það og vekja athygli á því af hálfu ríkisstjórnarinnar, þar sem það er kynnt sem skýrt dæmi um að ríkisstjórnin sé að taka á stjórnleysinu í útlendingamálum, taki því alvarlega. Hæstv. dómsmálaráðherra hafi til að mynda heyrt áhyggjur fólks sem verði teknar alvarlega og hér sé komið dæmi um það. Maður veltir fyrir sér — ef nálgunin er þessi, að nota svona mál sem hafa þetta lítil áhrif, þótt þau séu jákvæð í sjálfu sér, en að nota svona mál til að drepa málum á dreif að öðru leyti og taka ekki á raunverulega vandanum og umfangi hans og fela jafnvel eðli og umfang vandans með áherslunni á svona mál — er það þá til góðs þegar á heildina er litið?

Ég ætla að leyfa mér að nota líkingamál til að útskýra hvað ég á við. Segjum sem svo að eitthvert samfélag byggi á láglendi og þyrfti varnargarða til að koma í veg fyrir að það flæddi yfir landið, bæina og akrana. Svo kæmi á daginn að varnargarðarnir væru að bresta, af því að þeim hefði ekki verið sinnt. Þeir væru þegar farnir að leka og borgararnir hefðu af þessu miklar áhyggjur. Þeir gætu bara brostið endanlega fyrr en síðar og stjórnvöld brygðust við með því að segja: Ja, við erum hér komin með mál. Þegar það verður samþykkt mun það líklega þýða að við leggjum fáeina steina á hverju ári í varnargarðinn og þar með erum við að taka á vandanum. Sjáið þið, við ætlum í einhver ár að leggja nokkra steina í þennan varnargarð. En á sama tíma væru þessi stjórnvöld að boða það að þau ætluðu að styðja framkvæmd einhvers félagsskapar eða sjóðs, köllum hann Vætusjóð sem áformi að sprengja varnirnar. Hvert er ég að fara með þessu?

Jú, íslenska ríkisstjórnin og hæstv. forsætisráðherra eru á sama tíma og þetta mál er gert að lausninni á útlendingamálum að boða það að Ísland verði aðili að hælisleitendapakka Evrópusambandsins, sem er fullkomin sturlun, herra forseti. Mál sem hefur mikið verið rætt innan Evrópusambandsins og þeirra landa sem það myndar að undanförnu. Nokkur lönd hafa ekki bara lýst yfir efasemdum heldur lýst andstöðu við þátttöku í þessum hælisleitendapakka og nú í síðustu viku eða fyrir fáeinum dögum lýstu stjórnvöld í Lettlandi því yfir að þau myndu ekki taka þátt í hælisleitendapakka ESB og myndu ekki greiða sektirnar. Já, það er nefnilega þannig, fyrir þá sem ekki vita, að hælisleitendapakki Evrópusambandsins gerir m.a. ráð fyrir því að aðilar að þessum pakka þurfi að taka við, hvort sem þeim líkar betur eða verr, þeim hælisleitendum sem Evrópusambandið ákveður að senda til þessara landa. Þau ráða því ekkert sjálf hverjir það eru, hvort það séu hugsanlega einhverjir menn sem gætu fallið undir það sem við erum að ræða hér eða ekki. Þau skulu taka við þeim sem Evrópusambandið sendir. Geri þau það ekki greiða þau 20.000 evra sekt fyrir hvern og einn sem ekki er tekið á móti.

Við erum hér á Alþingi Íslendinga búin að eyða öllum þessum tíma, m.a. og ekki hvað síst vegna þess að ríkisstjórnin, meiri hlutinn, hafði ekki meiri áhuga á að klára þetta mál en svo að það var iðulega fært neðar á dagskrá þegar tækifæri gafst til að klára það. Við erum búin að eyða óhemjutíma í þetta mál sem mun í mesta lagi, svo vitnað sé í hv. þm. Grím Grímsson, varða tíu manns á ári, kannski engan. Þetta eru slíkar flækjur og tæknilegs eðlis að það er ekki víst að það dugi fyrir nokkurn einasta mann þegar kerfið og allar kæruleiðirnar koma við sögu og reyna að þvælast fyrir til að þessu sé framfylgt.

Þess vegna velti ég því fyrir mér, herra forseti: Er þetta raunverulega gott mál eða er þetta mál fyrst og fremst til þess fallið að drepa málum á dreif og koma í veg fyrir að við gerum það sem þarf að gera til að takast á við það ástand sem hér er ríkjandi í útlendingamálum? Við þurfum, eins og við höfum margoft bent á á undanförnum árum í Miðflokknum, ný útlendingalög, ný lög frá grunni sem taka mið af raunveruleikanum eins og hann er, taka mið af umfangi og eðli þess vanda sem við er að eiga. Frá því að þetta litla mál kom fram hjá þessari ríkisstjórn hafa Svíar, Norðmenn og Danir, og eflaust fleiri, tilkynnt um og hafið innleiðingu á strangari reglum þannig að enn er Ísland að dragast aftur úr. Menn hafa þó viðurkennt það hér, nokkrir hæstv. ráðherrar og hv. þingmenn stjórnarliðsins, að Ísland sé búið að dragast aftur úr Norðurlöndunum í þessu efni og hér sé löggjöfin linari og þetta eigi að vera eins konar liður í því að taka á því. En bara á meðan ríkisstjórnin hefur verið að vandræðast með þetta mál þá eru hin Norðurlöndin búin að stíga næstu skref og komin lengra frá okkur.

Varðandi það sem hér er rætt, möguleika á að vísa fólki úr landi, en einnig varðandi aðra þætti sem allir eiga það sameiginlegt að vera til þess ætlaðir að fæla fólk frá og sums staðar er það bara viðurkennt hreint út, fæla fólk frá því að sækja um hæli í þessum löndum. Hvert verður straumnum þá beint, til að fá það sem áður var kannski hægt að fá í Noregi, Svíþjóð eða Danmörku? Ég myndi telja að Ísland væri líklegur valkostur hjá þeim sem skipuleggja þessa fólksflutninga. En hér ræða menn enn um eitthvert tæknilegt atriði og velta vöngum yfir því hvaða áhrif þetta muni raunverulega hafa á mjög afmarkaðan, einstaklega afmarkaðan, þátt þessa máls. Um leið er haldið áfram í hina áttina í stóru myndinni, m.a. því sem ég nefndi hér áðan, þeim ótrúlegu áformum um að þvæla Íslandi, í öllum þeim vanda sem Ísland hefur komið sér í þessum efnum, inn í hælisleitendapakka Evrópusambandsins, réttara sagt innflytjenda- og hælisleitendapakka Evrópusambandsins; eftirláta ESB að stjórna þessu fyrir okkur og ekki í raun að stjórna þessu öllu heldur bara að bæta við vandann hjá okkur, því hinn sem fyrir var verður þar eftir sem áður.

Nú eru spænsk stjórnvöld nýbúin að tilkynna að 500.000 ólögmætir flóttamenn, eins og það er kallað þar í landi, þ.e. fólk sem hefur komið til landsins með ólögmætum hætti, eigi að fá þar dvalarrétt og þar með eru þeir komnir inn á Schengen-svæðið sem Ísland er aðili að. Hvernig ætla íslensk stjórnvöld að bregðast við þessu? Þegar 500.000 manns sem brjóta lög og koma með ólögmætum hætti til Spánar eru allt í einu komnir í stöðu til að hugsanlega halda til Íslands í leit að betri kjörum hér — en eins og þekkt er, og oft hefur verið rætt í tengslum við þessi mál, er það sem kallað er „asylum shopping“, afsakið, herra forseti, það að leita að bestu kostunum sem í boði eru fyrir hælisleitendur, þegar orðið að stóru atriði í því hvernig straumi fólks er stjórnað. Ísland var auðvitað komið rækilega á kortið með þeirri stefnu sem hér hefur verið fylgt eða stefnuleysi eftir atvikum.

Ég ætlaði ekkert að hætta mér of mikið inn í þetta, enda sá ég ekki ástæðu til, þessar tæknilegu vangaveltur um þetta mál, en ætla þó að nefna aðeins í framhjáhlaupi, í umræðu um stóru myndina, hvaða áhrif þetta hafi til að mynda á það ef einhver gerist hér ítrekað sekur um alvarleg brot, er dæmdur ítrekað á æðsta dómstigi og kemst þá hugsanlega í hóp hinna fáu sem mögulega er hægt að brottvísa. Hvað ef viðkomandi heldur því síðan fram að hann sé ekki sakhæfur og fær einhvern til að staðfesta það, bendir á að hann fái ekki sams konar þjónustu í heimalandinu? Hvað ef einhver sem er búinn að brjóta ítrekað af sér og verður dæmdur er t.d. meðlimur í hryðjuverkasamtökum? Þetta er ekki úr lausu lofti gripið, herra forseti. Það eru dæmi um það að menn hafa fengið dvalarleyfi á Íslandi á þeim forsendum að þeir voru meðlimir í hryðjuverkasamtökum, þ.e. samtökum sem í heimalandinu voru skilgreind sem hryðjuverkasamtök og reyndar í mörgum Evrópulöndum og Ameríku líka. En af því að í heimalandinu væri það illa séð að menn væru meðlimir í þessum hryðjuverkasamtökum væri ekki gott að senda viðkomandi þangað og betra að hafa hann hér.

Herra forseti. Þetta kerfi hérna, ef kerfi skyldi kalla, er náttúrlega í slíkum henglum og tómu rugli að það ergir mig að við þurfum að eyða mánuðum í að ræða mál eins og þetta og séum ekki að ræða það hvernig verði raunverulega tekið á því sem við stöndum frammi fyrir hérna í útlendingamálum á Íslandi. Þetta mál er ekki einu sinni uppfinning þessarar ríkisstjórnar. Þetta var eitt af litlu útlendingamálum Sjálfstæðisflokksins á síðasta kjörtímabili. Og hvernig töluðu hv. þingmenn Samfylkingar og Viðreisnar þá um þessi mál? Ég man ekki betur en að þar hafi fengið að fljúga alls konar fordæmingar um jafnvel rasisma, skort á mannúð og þar fram eftir götunum. Nú telur þessi hæstv. ríkisstjórn að vænlegast sé að virðast vera að taka á útlendingamálum og í því skyni er þetta mál hér fram komið. Stjórnin er reyndar búin að treina sér það nú von úr viti af ótta við að missa það sem gulrót við það að afgreiða önnur mál. En hér er það komið á dagskrá og 3. umræðu loks að ljúka.

Hvers er að vænta næst? Hvað kemur næst? Verður það annað svona tæknilegt lagfæringarmál sem menn geta sagt: Já, þetta er til bóta, og hægt að eyða einhverjum mánuðum í að ræða það og veifa því framan í fólk sem dæmi um það að ríkisstjórnin sé að taka á útlendingamálum? Eða verður það kannski útlendingapakki Evrópusambandsins, innflytjenda- og hælisleitendapakki ESB, sem á að taka gildi í júní á þessu ári? Mun ríkisstjórnin, sem að a.m.k. að hluta til hugsar ekki um neitt annað en að koma Íslendingum inn í Evrópusambandið með góðu eða illu, gera það að forgangsmáli að afgreiða hælisleitendapakka ESB, fallast á kröfur Evrópusambandsins í þessum málaflokki, eins erfiðlega og hefur nú gengið hjá ESB að hafa stjórn á þessu, til þess að liðka fyrir því að Íslandi verði komið þarna inn?

Viðhorf Evrópusambandsins til Íslands í þessum málum ætti að vera þekkt. Ég hef til að mynda sjálfur ítrekað, ja, alla vega þrisvar svo ég sé nú ekki ýkja, heyrt talsmenn ESB halda því fram að Ísland þurfi að taka á móti miklu fleira fólki. Maður bendir á hvað aukningin hafi verið gríðarlega mikil hlutfallslega. Hvert er svarið, ekki einu sinni, ekki tvisvar, heldur þrisvar? Já, en þið hafið nóg pláss. Það er nóg pláss á Íslandi og þess vegna eigið þið að geta tekið við miklu fleirum en við hérna í Þýskalandi, ég tala nú ekki um í Hollandi og Sviss, Þýskaland er reyndar þéttbýlla en Sviss, þar sem við höfum ekki pláss. Hvert verður þá viðhorfið þegar Ísland er búið að álpast inn í þetta samkomulag sem vonandi gerist aldrei? Það verður bara að bæta í, senda fleiri og fleiri til Íslands og öllu þessu mun núverandi hæstv. ríkisstjórn kyngja ef aðrir koma ekki í veg fyrir það.