útlendingar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Ég verð nú að viðurkenna að ég er orðin býsna vön því að hv. þingmaður tali um litlu útlendingafrumvörpin. Á síðasta kjörtímabili lét hv. þingmaður þessi orð falla um þau stóru mál sem fóru hér í gegn á síðasta kjörtímabili og þurfti nú allmikið afl til að ná þingheimi saman um að afgreiða þær breytingar sem þá voru gerðar á útlendingalögunum. Ég veit að hv. þingmaður fylgist vel með þessum málaflokki og ég veit líka að hann er ekki mikið fyrir að hrósa fyrrverandi ríkisstjórn en ég vona að hv. þingmaður sjái það engu að síður að breytingin hefur verið töluverð, umtalsverð, á fjölda þeirra sem hingað koma og sækja um alþjóðlega vernd eftir þær breytingar sem fóru í gegn á síðasta kjörtímabili.
Ég verð að viðurkenna það að ég er sammála hv. þingmanni þegar hann talar um að þetta sé litla útlendingafrumvarpið. Það er nú reyndar þannig að hér kom hv. þm. Grímur Grímsson upp áðan og sagði einmitt að það væri ólíklegt að þessum ákvæðum yrði oft beitt þannig að þetta mun væntanlega ekki breyta neinu stóru í jöfnunni þegar verið er að tala um alþjóðlega vernd. Ég held að við séum flest sammála um það. Ég kannski spyr hv. þingmann út í þá breytingartillögu sem við í Sjálfstæðisflokknum lögðum fram og Miðflokkurinn tekur undir hana, það ritar hv. þingmaður úr Miðflokknum undir þá breytingartillögu í nefndarálitinu. Mér er svolítið umhugað um orðin „að skylda“, sem sagt að það skuli afturkalla alþjóðlega vernd þegar fólk hefur brotið af sér með alvarlegum hætti og verið dæmt fyrir það. Ég skynja meiri hlutann þannig að þau ætli ekki að styðja þá breytingartillögu og vilji halda sig við orðalagið að heimilt sé. Ég óttast mjög að það muni kalla á aukið álag hjá kærunefnd útlendingamála en ég býst jafnframt við því að það kunni að koma fram í Evrópupakkanum, sem mér heyrist að hv. þingmaður sé ekki mjög hrifinn af útlendingalöggjöf Evrópusambandsins, að þar komi fram þetta skylduákvæði. (Forseti hringir.) Þannig að spurning mín til hv. þingmanns er: Skilur hann af hverju meiri hlutinn stendur í vegi fyrir því að nota orðalagið að það skuli afturkalla skal vernd í staðinn fyrir að heimilt sé að afturkalla hana og telur hann (Forseti hringir.) að sú afstaða muni breytast ef frumvarp um slíkt kæmi frá Brussel?