útlendingar.
Frú forseti. Við höfum nú séð það áður að afstaða ríkisstjórnarinnar er fljót að breytast og verða jákvæð ef eitthvað kemur frá Brussel frekar en stjórnarandstöðunni á Alþingi Íslendinga. Ég efast ekki um það og það má kannski segja að hv. þm. Grímur Grímsson hafi hálfpartinn ljóstrað upp um það í andsvörum við hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur að sú yrði raunin. En það er furðuleg afstaða að ætla að gera hlutina verri nema að fá fyrirmæli um annað frá Evrópusambandinu og er kannski til marks um það hversu veikt þetta mál allt saman er.
Hv. þingmaður spurði um afstöðu mína til breytingartillögunnar. Hv. þingmenn Snorri Másson og Brynjar Níelsson lögðu fram sitt hvora breytingartillöguna hér við 2. umræðu og þær hafa nú, að mér skilst, verið sameinaðar í eina tillögu sem ég tel vissulega til bóta, meðal annars varðandi skylduna, og mun styðja hana. Það er ekki spurning um það. En eftir standa áhyggjur mínar af því að þessu sé ætlað að drepa málum á dreif. Hv. þingmaður gerði athugasemd við talið um litlu útlendingamálin hér áður fyrr, að þau hefðu breytt svo miklu, en hverju breyttu þau í raun? Stærsta breytingin var sú þegar úrskurðarnefnd um útlendingamál leiðrétti mistök sín varðandi eitt tiltekið land. Það hafði strax umtalsverð áhrif en engu að síður er straumurinn hingað, og mikilvægt að líta ekki bara til hælisleitenda heldur til alls stjórnleysis í kerfinu sem tekur á sig ýmsar myndir, eins og hæstv. dómsmálaráðherra má eiga að hann viðurkenndi, að straumurinn bara heldur áfram. Þá þýðir ekkert að segja: Ja, ef það voru bara 1.900 í fyrra þá er það ekkert vandamál af því að það voru 4.500 fyrir þremur árum. 1.900 bara í hælisleitendamálunum er auðvitað langt umfram það sem eðlilegt getur talist fyrir svona lítið land og svo bætist allt hitt við og þar er sannarlega fjölgun áfram.