157. löggjafarþing — 69. fundur,  10. feb. 2026.

útlendingar.

112. mál
[19:12]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég verð að reyna að þjappa svarinu saman á þessum tveimur mínútum. Aðallega er stefna Miðflokksins sú að bæta fyrir það óstjórnlega tjón sem varð í þessum málaflokki í tíð síðasta meiri hluta og heldur áfram með þeim meiri hluta sem nú er. Það verður að vísu aldrei almennilega hægt að bæta fyrir tjónið að fullu en það er hægt að koma í veg fyrir að það haldi áfram. Það gerum við ekki öðruvísi en með því að ná raunverulegri stjórn á landamærunum hér og ráða því sjálf hverjum við bjóðum til landsins. Ráða því sjálf hvaða hælisleitendum og flóttamönnum við tökum á móti og ekki hvað síst að ná stjórn á öðrum kerfum sem hafa verið misnotuð stórkostlega á undanförnum árum, til að mynda kerfi sem átti að heimila fólki með sérfræðiþekkingu að koma til landsins og hefur verið notað til að flytja inn fólk sem hefur orðið jafnvel fórnarlömb mansals. Ná stjórn á misnotkun þess kerfis sem heimilar námsmönnum að koma hingað en hefur verið notað til að smygla inn fólki fram hjá kerfinu sem svo um leið og það er komið inn sækir hér um hæli fremur en að fara í nám.

Það vill svo vel til að Ísland er betur í stakk búið til að taka á þessu heldur en flest, ef nokkur, önnur lönd á Vesturlöndum. Við erum með náttúruleg landamæri sem gera okkur það kleift. Auk þess kemur enginn beint hingað frá hættusvæðum eða beint frá átakasvæðum. Menn hafa komið við í öðrum löndum áður. Það er stefna okkar að senda fólk aftur til þeirra landa svo það geti sótt um hæli þar eins og því bar að gera samkvæmt gildandi reglum, en við nýtum síðan þá möguleika sem við höfum á að hjálpa fólki betur fyrir vikið með því að velja hverjum við bjóðum hingað og auk þess að nýta fjármagn til að aðstoða fólk á nærsvæðunum.