157. löggjafarþing — 69. fundur,  10. feb. 2026.

útlendingar.

112. mál
[19:15]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég kem hér upp til að ræða sérstaklega nefndarálit frá 1. minni hluta allsherjar- og menntamálanefndar og breytingartillögu. Eins og fram kemur í greinargerðinni og þingheimur þekkir þá kom breytingartillaga fram frá Sjálfstæðisflokknum við 2. umræðu þessa frumvarps en hún kom ekki til atkvæða af því að tillagan var dregin til baka þar sem skilningurinn var sá og því var gefið undir fótinn að það væri áhugi fyrir því að skoða breytingartillöguna í jákvæðu ljósi og jafnvel samþykkja hana. Þannig að breytingartillagan var dregin til baka og samþykkt að ræða hana og frumvarpið á milli 2. og 3. umræðu.

Nú þegar sér fyrir endann á, ótrúlegt en satt, fyrstu breytingum þessarar ríkisstjórnar á útlendingalöggjöfinni finnst okkur Sjálfstæðismönnum og fleirum að markmið og tilgangur þessa frumvarps sé af hinu góða og við styðjum markmiðið, við styðjum tilganginn. En við höfum af því áhyggjur, eins og kom fram hér við 2. umræðu frá fjölmörgum hv. þingmönnum, að ákveðin ákvæði frumvarpsins séu of óskýr og matskennd til þess að við náum þessu góða markmiði sem stefnt er að. Það er svolítið undarlegt að sjá og hugsa til þess að þetta sé í raun fyrsta breyting þessarar ríkisstjórnar á útlendingalöggjöfinni sem nú sér fyrir endann á. Af umræðunni mætti ráða, m.a. hefur hæstv. utanríkisráðherra stigið hér í pontu og haft uppi stór orð um það og fleiri, að það væri algert forgangsmál hjá þessari ríkisstjórn að gera nauðsynlegar breytingar á útlendingalöggjöfinni til að færa hana til samræmis við löggjöf nágrannaríkja okkar. En þessum orðum hafa hreinlega ekki fylgt nægjanlegar aðgerðir og við vitum að það skortir, eða ég tel mig a.m.k. vita að það skorti ekki upp á vilja hæstv. ráðherra sem hefur haft framgöngu um og gefið skýr skilaboð um hver er hennar vilji varðandi það að samræma löggjöfina okkar við löggjöf nágrannaríkjanna þannig að íslenska löggjöfin standi ekki út úr og sé ekki með einhverjar séríslenskar reglur og séríslenska segla.

Maður veltir fyrir sér hvað veldur því að þetta er fyrsta breytingin sem sér loksins fyrir endann á á útlendingalöggjöfinni, hvort það sé mögulega einhver óróleiki á vinstri væng ríkisstjórnarinnar sem hafi verið að tefja. Það hefur auðvitað verið reynt ítrekað hér í þessum þingsal að mála upp þá mynd að það sé stjórnarandstaðan sem sé að tefja, sé með einhverja tafaleiki. Við getum ekki gert annað en að bera þær sakir af okkur og sýnum það í verki með því að ítrekað óska eftir því að útlendingamálin séu sett fremst á dagskrá og sett raunverulega í forgang hér í þinginu. En við því hefur ekki verið orðið og þá læðist að manni sá grunur að það sé einhver óróleiki á vinstri vængnum sem sé að trufla framgöngu og vilja hæstv. dómsmálaráðherra.

En aðeins til þess að ræða þetta nefndarálit 1. minni hluta langar mig að fara ofan í saumana á því og þær breytingar sem við styðjum þar. Þá er auðvitað, eins og ég sagði, markmiðið að samræma fyllilega lög um útlendinga við löggjöf annars staðar á Norðurlöndunum og við höfum af því áhyggjur að ekki sé verið að ganga nægilega langt. Þetta er nú saga sem við státum okkur af í Sjálfstæðisflokknum, þingmenn Sjálfstæðisflokksins, að hafa verið samkvæm okkur með. Við höfum viljað til langs tíma samræma okkar löggjöf við það sem viðgengst í nágrannaríkjum okkar en mættum auðvitað á síðasta kjörtímabili, eins og frægt er orðið, alveg gríðarlega mikilli andstöðu, m.a. frá flokkum sem núna sitja í ríkisstjórn, auðvitað ekkert öllum hv. þingmönnum en það eru hér þingmenn í stjórnarliðinu, jafnvel í þingflokki hæstv. dómsmálaráðherra, sem létu hér mjög ófriðlega og reyndu með öllum tiltækum ráðum að koma í veg fyrir eðlilega og nauðsynlega umræðu og nauðsynlegar breytingar á íslensku útlendingalöggjöfinni.

Við viljum hreinlega að það sé tryggt með fullnægjandi hætti að alvarleg afbrot þeirra sem hafa hlotið alþjóðlega vernd leiði af sér afturköllun verndar, að það sé tryggt að slík afbrot leiði af sér afturköllun verndar. Af þeim sökum eru lagðar til þessar breytingartillögur til þess að skýra ákvæði frumvarpsins og herða á úrræðunum sem íslensk stjórnvöld hafa til þess að afturkalla vernd. Við teljum að þessar útfærslur okkar, breytingartillögur, séu í samræmi við útlendingalöggjöf nágrannaþjóða okkar og í samræmi við það sem Schengen-samstarfið krefst af okkur. Við þreytumst ekki á því, bæði í stjórn og stjórnarandstöðu, að tala um það við hátíðleg tilefni að við eigum að vera ábyrgur þátttakandi í því alþjóðlega samstarfi sem við tökum þátt í og þetta er auðvitað bara eitt af því, varsla landamæranna okkar og við getum auðvitað ekki verið óábyrgur aðili í þessu mikilvæga samstarfi sem Schengen-samstarfið er.

Mig langar til að minna á það sem gleymist stundum að það er auðvitað mikilvægasta og fyrsta hlutverk stjórnvalda að gæta að öryggi borgara sinna. Hluti af því, og um það virðist loksins hafa náðst breið samstaða hér í þinginu, með leyfi forseta, „að geta afturkallað alþjóðlega vernd ef einstaklingur brýtur alvarlega gegn því samfélagi sem hefur kosið að veita viðkomandi vernd,“ svo notuð séu orð úr greinargerð með nefndaráliti 1. minni hluta. Það eru nefnilega ekki, og mér finnst þetta góð setning sem kemur fram í nefndarálitinu, með leyfi forseta, „almenn mannréttindi útlendinga að fá að koma hingað til lands til að fremja afbrot“. Við höfum undirgengist ákveðna alþjóðlega sáttmála sem skuldbundið okkur til að veita fólki alþjóðlega vernd að ákveðnum skilyrðum uppfylltum en sú vernd er auðvitað ekki takmarkalaus. Þessum réttindum sem við erum að veita fólki í okkar landi, í okkar friðsæla landi, friðsælasta og öruggasta landi í heimi — það eru ekki mannréttindi, eins og hér segir, að fá síðan að launa það með því að brjóta af sér.

Önnur skilaboð sem mér þykja vera mjög mikilvæg í þessu nefndaráliti frá 1. minni hluta allsherjar- og menntamálanefndar eru fælingarmátturinn og skýru skilaboðin sem felast í því að við séum að samþykkja þessar breytingar hér á Alþingi og þau þurfa að vera sterk. Ég hef talað fyrir þessu, reyndar í fleiri málum. Ég hef talað fyrir þessu líka þegar kemur að t.d. afplánun fanga bæði í heimalandinu eða jafnvel í fangelsum erlendis eins og nágrannalönd okkar hafa verið að skoða og jafnvel gert samninga um eins og Danmörk hefur gert. Það felst í því ákveðinn fælingarmáttur og skilaboð. Eins og ég sagði þá styðjum við markmið þessa frumvarps og við teljum að tilgangur og markmið frumvarpsins sé gott en erum að reyna að leggja af að leggja okkar af mörkum til að bæta það.

Við þekkjum það vel í Sjálfstæðisflokknum að þetta er síbreytilegt umhverfi, það er oft verið að bregðast við einhverju sem kemur upp. Þetta er ekki eitt af þeim atriðum. Þetta er bara eitt af þeim atriðum þar sem við erum langt á eftir okkar nágrannaþjóðum með, m.a. út af þessari hörðu andstöðu sem var hérna á síðasta kjörtímabili, og reyndar á kjörtímabilinu þar á undan líka. Sumir hv. þingmenn sem sitja hér á þingi þekkja það vel og tóku þátt í andstöðu gagnvart nauðsynlegum og löngu tímabærum breytingum á okkar útlendingalöggjöf. Við þekkjum það vel í Sjálfstæðisflokknum, við höfum leitt þessa umræðu árum saman og reynt að hafa áhrif á löggjöfina okkar með þessum hætti. Við tókum á því á síðasta kjörtímabili, af því að þetta er auðvitað, eins og ég sagði, síbreytilegur veruleiki og það er oft verið að bregðast við einhverju sem kemur upp, tókum m.a. frávísanir frá Keflavík föstum tökum og sömuleiðis brottflutning ólöglegra hælisleitenda — aftur við gríðarlega mikla andstöðu hér á Alþingi. Við fórum í gegnum alveg rosalega langar og erfiðar umræður, einhverjir myndu segja umsátur um þingsal en auðvitað bara góða, opna og lýðræðislega umræðu að einhverju leyti.

Við þekkjum það orðið vel í íslensku samfélagi og það er hætt að vera svona mikið launungarmál — og flestir, a.m.k. þeir sem sitja núna í ríkisstjórn, eru hættir að reyna að hafa þau áhrif á umræðuna að reyna að þagga hana niður, taka frekar þátt í henni og það er auðvitað ótrúlega jákvæð þróun til hins betra — að það hefur falist áskorun í þessum gríðarlega fjölda sem hefur sótt til Íslands í gegnum hæliskerfið okkar til að sækja um alþjóðlega vernd. Það hefur komið allt of stór hópur af fólki, við höfum ekki haft undan að vinna umsóknirnar og taka nógu vel á móti fólki eins og við viljum auðvitað gera, fólki sem er raunverulega flýja ofsóknir eða stríð eða hvað sem það nú er sem skilyrðin segja til um. En það er ekki bara fjöldinn sem hefur verið íslensku samfélagi alveg gríðarlega mikil áskorun, það er nefnilega ekki bara fjöldinn. Það hefur líka verið gríðarleg áskorun að hingað hefur komið fólk í gegnum verndarkerfið sem hefur hreinlega ekki aðlagast íslensku samfélagi og mér er reyndar til efs að vilji hafi staðið til þess hjá sumum þessara einstaklinga. Mér finnst það eiginlega blasa við að einhverjir hafi komið hérna með þær hugmyndir að þeir þyrftu ekki að aðlagast íslensku samfélagi eða fara eftir lögum og reglum sem við setjum okkur hér, af því að m.a. hafa þeir væntanlega vitað að þeir væru komnir á endastöð, þeir yrðu ekki sviptir þessari alþjóðlegu vernd. Þetta birtist svo greinilega í m.a. afbrotum einstaklinga sem hafa komið hér undir verndarkerfinu.

Flóttamannakerfið, verndarkerfið, er auðvitað neyðarkerfi. Ef við setjum það til hliðar hvernig það er trekk í trekk misnotað af fólki sem er í leit að betri lífskjörum, sem maður getur auðvitað sumpart skilið — ef löggjöfin er þess eðlis og framkvæmdin að við opnum á þann möguleika að fólk geti komið hingað, það má segja á fölskum forsendum, í raun í leit að betri lífskjörum, ekki af því að það er verið að flýja einhverjar ákveðnar aðstæður. Setjum þennan hóp til hliðar og skoðum þann hóp sem ég var að tala um, fólk sem kemur hingað til lands og er tekið hér opnum örmum og launar það síðan með lögbrotum, gríðarlega alvarlegum afbrotum, þannig að viðkomandi teljast vera ógn við frið og öryggi hér á landi. Það vefst aðeins fyrir mér í þessum tilvikum af hverju einhverjir og nokkrir koma hér upp til þess að taka upp hanskann fyrir og í rauninni mótmæla því að vernd slíkra einstaklinga sé afturkölluð af því að þarna eru undir afbrot sem eru gríðarlega alvarleg og við hljótum að geta verið sammála um að séu ógn við öryggi. Hverjar eru ástæðurnar fyrir því að fólk kemur hingað upp til að mótmæla því að í slíkum tilvikum sé í rauninni skylt að afturkalla vernd viðkomandi? Í hvaða tilvikum er það ásættanlegt að viðkomandi sem hefur framið slík gríðarlega alvarleg afbrot og brot gagnvart okkar samfélagssáttmála, við sem höfum tekið þessu fólki opnum örmum — í hvaða tilvikum væri réttlætanlegt að það væri ekki skylt að svipta viðkomandi alþjóðlegri vernd? Mér detta ekki slík tilvik í hug. Þetta var það sem mig langaði að skilja eftir í þessari umræðu að þessu sinni.