157. löggjafarþing — 69. fundur,  10. feb. 2026.

útlendingar.

112. mál
[19:29]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Frú forseti. Nokkur orð í viðbót í þessa ágætu umræðu sem hér hefur átt sér stað. Fyrst langar mig að bera þar niður og nefna örstutt, vegna samskipta sem áttu sér stað hér fyrr í dag undir, að ég hygg undir liðnum um fundarstjórn forseta, hvernig við upplifðum sumir hverjir hér þingmenn málin hér á allra síðustu metrunum fyrir jól. Því verður ekki öðruvísi lýst en að við höfum upplifað leikrit. Ég held þó að þeirri leiksýningu hafi lokið með öðrum hætti en til stóð og lagt var upp með vegna þess, eins og ég nefndi í þeim orðaskiptum sem þá áttu sér stað, að það mun enginn trúa því, sem fylgist með og hlustar á umræðurnar hér á Alþingi Íslendinga að Miðflokkurinn sé að tefja fyrir málum er lúta að viðleitni, tilraunum og ásetningi um að ná einhvers konar tökum á málefnum hælisleitenda, svo það sé bara sagt.

Hér hefur verið rætt talsvert í dag og var augljóslega þörf á mun á hugtökum, annars vegar um skyldu til afturköllunar við endurtekin brot eða mjög alvarleg brot eða heimild til afturköllunar alþjóðlegrar verndar. Ég hygg að allir sem velta þessum orðum fyrir sér skynji mjög auðveldlega áferðarmuninn á þessu og þurfi ekki lögfræðimenntun til. En það er hins vegar annað sem farið hefur kannski minna fyrir í umræðunni um þessi hugtök sem mig langar að benda bara örstutt á hér, frú forseti, sem ég held reyndar að einhver hafi nefnt fyrr í dag. Það eru þó nokkuð margir þingmenn búnir að taka til máls og þar af leiðandi er búið að reifa málið frá hinum ýmsu hliðum. Með hugtakinu heimild erum við í raun og veru að fela framkvæmdarvaldinu eða ráðherra málaflokksins hverju sinni vald í formi reglugerðarheimildar. Þær eru auðvitað víða notaðar í öllu okkar lagaumhverfi en fela engu að síður í sér meira, ef svo má kalla, framsal á valdi. Við færum ákvarðanatökuna örlítið, ekki stórt skref, en örlítið lengra frá kjósandanum, ekki bara þingheimi heldur frá kjósandanum. Ef við værum hér að vinna með hugtakið skylda, eins og ég skil þessa umræðu sem hefur átt sér stað hér í dag, er hún afdráttarlaus, þó að vissulega geti komið upp einhver tilfelli þar sem þessu hugsanlega yrði ekki við komið vegna þess að það lægi fyrir að framfylgd á þeirri skyldu fæli í sér allt að því dauðadóm yfir viðkomandi aðila. Þá hafa jafnframt verið viðraðar aðrar hugmyndir í því samhengi sem hægt væri að nota til að leysa það mál, þ.e. skyldan stæði til afturköllunar á dvalarleyfinu og við gætum, eins og nefnt hefur verið hér með Dani og eins og stundum er sagt á stofnanamáli, útvistað verkefninu. Viðkomandi myndi missa hér dvalarleyfi vegna alþjóðlegrar verndar og það væri þá ríkisins að greiða fyrir dvöl viðkomandi undir eftirliti í öðru ríki. Þessi skref eru Danir að taka og þess vegna trúi ég því ekki að það sé neitt ómögulegt í því hér.

Ég vil þó segja, til að gæta allrar sanngirni, að málið er alla vega að mati þess sem hér stendur, jákvætt hænuskref, en það er samt bara hænuskref þótt jákvætt sé. Hver næstu skref verða er auðvitað mjög spennandi að sjá. Það er mikilvægt skref að því marki að heimildin eða skyldan þarf að vera til staðar. Ég held að allur þingheimur sé orðinn sammála um það. Það eitt og sér er mikill áfangi í þessari umræðu frá til að mynda síðasta eða þarsíðasta kjörtímabili þar sem staðan var alls ekki sú að þingheimur væri allur kominn á þann stað að telja þetta nauðsynlegt. En þetta eru þó tiltölulega fáir einstaklingar sem falla hér undir og þess vegna held ég að þingmenn hafi sumir hverjir leyft sér að kalla þetta litla útlendingamálið. Það kom m.a. fram í ræðu hv. þm. Gríms Grímssonar eða líklega í svari þó frekar við andsvari um það hversu marga einstaklinga þetta gæti mögulega gilt um á ári hverju, þá gæti þetta verið að mati hv. þm. Gríms Grímssonar, sem hefur talsverða reynslu af þessum vettvangi, u.þ.b. eða að hámarki tíu manns. Mér þykir þessi tala alls ekki ólíkleg, en jafnvel rífleg. En látum það liggja á milli hluta, enda kannski ekki stóra málið í þessu hvort einstaklingarnir eru sex eða tíu. Þetta skref þarf að taka.

Ég velti líka upp fleiri dæmum. Það er alltaf svoleiðis að eftir því sem við setjum okkur betur inn í mál þá verða oft og tíðum til fleiri spurningar en svör. Ég velti fyrir mér hvernig til að mynda þetta tiltekna frumvarp, ef með nokkrum hætti, myndi ná utan um dæmi þar sem við værum búin að veita einstaklingi alþjóðlega vernd hér á landi og í kjölfarið, einhvern tíma seinna, ári, seinna, fimm árum seinna, tímaramminn er kannski ekki aðalmálið, kemur í ljós að viðkomandi hafi verið og sé skráður í hryðjuverkasamtök, hafi jafnvel tekið þátt í hryðjuverkum á erlendri grundu en hafi hins vegar ekki brotið af sér hér á landi. Ég fæ ekki í fljótu bragði séð, frú forseti, að þetta tiltekna frumvarp nái utan um slík dæmi og hér er ekki um einhverja útópíu að ræða, frú forseti, svo því sé haldið til haga. Við Íslendingar höfum staðið frammi fyrir því að einstaklingar hafi verið komnir til landsins með dvalarleyfi, fluttir í tiltölulega lítinn bæ úti á landi, þegar kom í ljós að viðkomandi aðilar voru eða höfðu verið í hryðjuverkasamtökum. Það er eitt af því sem ég velti fyrir mér, frú forseti, og sé ekki í fljótu bragði hvernig þetta frumvarp nær utan um eða yfirleitt nær nokkuð utan um það.

Svo langar mig aðeins að drepa örstutt á, af því það hefur aðeins verið nefnt hér, að það voru ákveðnar væntingar í gangi um breytingartillögur annars vegar Miðflokksins og hins vegar Sjálfstæðisflokksins sem stóð til að leggja fram en þær voru svo dregnar til baka því það átti að ræða þær meira í hv. nefnd. Þó að ég sitji ekki í þessari nefnd og viti ekki nákvæmlega hver orðaskiptin voru milli einstaklinga á lokuðum nefndarfundi þá átti ég þó samtöl hér fleiri en eitt við hv. þm. Víði Reynisson sem gáfu mér í það minnsta vel til kynna að það væri verið að rétta þarna út sáttarhönd með því að stoppa það af að setja fram þessar breytingartillögur, m.a. hvað varðaði skylduna sem ekki fer inn en ítrekunin hins vegar fór inn þó að búið sé að skipta reyndar um höfund á henni, frú forseti, en ég missi ekki svefn yfir því. Ég fann það bara og skildi það þannig af samtölum mínum að það stæði til að athuga hvort það væri ekki með einhverju móti hægt að finna leið að því að koma þessu svo fyrir og nefndin myndi leggjast yfir það.

Í skemmstu máli er niðurstaðan sú, frú forseti, að þetta hefur augljóslega ekki farið inn. Ég held að það sé ekki til góðs, ekki bara þessa máls vegna, heldur vegna þess að þegar slíkt traust er milli þingmanna hér í salnum og slíkur vilji er til að leysa einhvern hnút sem lítur út fyrir að vera smám saman að herðast á þá skiptir auðvitað talsvert miklu máli að sú tilfinning skili sér inn í framhald vinnunnar. Ég á bágt með að trúa því að þegar um er að ræða hugtak sem, eins og hér hefur komið fram, Noregur til að mynda, Svíþjóð, Danmörk og ESB-ríki hafa nú þegar tekið inn eða eru að taka inn, að þá hafi verið einhver pólitískur ómöguleiki í því. Ég kem ekki auga á það, frú forseti, því hér eru nú við stjórnvölinn þeir flokkar sem helst hafa verið kenndir við það að vilja ganga, sumir hverjir bara alla leið inn í ESB og aðrir kannski betur í takt við ESB. Þetta er sú þróun sem við erum að sjá hér í kringum okkur og varla var það markmið — ef ég leyfi mér í svona smá gráglettni að vera með lítils háttar saklausar uppnefningar — ESB-ríkisstjórnarinnar að ganga skemmra en það regluverk sem er jafnt og þétt að fæðast í Evrópuríkjunum. Ég átta mig ekki á því og mér þykir enn verra ef það er einhver pólitík í því að þarna hafi meiri hlutanum þótt hann aldeilis hafa gert nóg fyrir málflutning minni hlutans og þetta yrði að duga í bili. Þá er til þess að horfa í því samhengi, frú forseti, að ef þetta verður á næstu misserum eða árum að einhvers konar meginstefnu í regluverki Evrópusambandsins þá mun væntanlega birtast hér tilskipun. Þá verður mjög forvitnilegt og allrar athygli vert að hlusta á, einkum og sér í lagi núverandi hæstv. utanríkisráðherra, núverandi hæstv. dómsmálaráðherra og í raun Viðreisn alla, færa fyrir því rök — og ég hvet fólk til að leggja þetta á minnið — hvers vegna það er svo nauðsynlegt að taka það skref að þetta skuli innleitt sem skylda. Ég spái því hér með, óhræddur við það, vitandi það að hér eru ræður bæði ritaðar og teknar upp, að þetta hugtak muni rata á fjörur okkar á ný sem tilskipun frá Evrópusambandinu því að öðrum kosti verður Ísland gatið. Það kynni þó ekki að vera, án þess að ég sé að slá neinu föstu, að ástæðan fyrir því að við stöndum hér 10. febrúar að fjalla um mál sem til að mynda sá sem hér stendur taldi að yrði afgreitt síðastliðið haust og kom svo ýmist ekki á dagskrá eða aftast á dagskrá, á eftir stórum og þungum málum, í verkstýringu forseta hér í þinginu — maður veltir auðvitað fyrir sér og hjá því verður ekki komist, frú forseti — það kynni þó ekki að vera að vinstri vængur þessarar ríkisstjórnar hafi verið bara aðeins að þvælast fyrir málinu og það hafi hentað alveg prýðilega að reyna að stilla upp þeirri mynd að það væri minni hlutinn sem ekki vildi ræða þetta mál?

Ég hygg að þeir sem hafa hlustað á umræðuna hér í dag greini það mjög vel að það er ekki andstaða minni hlutans við þetta mál sem hefur tafið fyrir því að það kæmi á dagskrá. Þvert á móti sýnist mér og heyrist að þær raddir sem hér hafa ómað frá þingmönnum hv. minni hlutans eigi það nú frekar sameiginlegt að telja að hér sé ekki nógu langt gengið. Ég mun greiða þessari viðleitni atkvæði mitt þegar þetta kemur til atkvæðagreiðslu því að ég er ekki á móti málinu og hef aldrei verið. Ég spái því að meginþorri þingmanna, ef ekki allir hv. þingmenn minni hlutans, muni gera slíkt hið sama. Það þýðir þó ekki að það sé ekki eitt og annað sem hefði mátt ræða í málinu og gagnrýna. Ég tel reyndar að sú gagnrýni hafi að nokkru leyti skilað sér og kallað fram breytingu á frumvarpinu þó að ég telji að það hefði mátt taka eitt skref í viðbót til að gera málið enn þá betra sem er þetta hugtak um skylduafturköllun. En eins og ég segi, ég mun ekki þvælast fyrir þessu máli. Ég ítreka það þó, bara svo það sé algjörlega á hreinu, frú forseti, að verkstjórnin var allan tímann í höndum meiri hlutans. Dagsetningin er í boði meiri hlutans.