157. löggjafarþing — 69. fundur,  10. feb. 2026.

útlendingar.

112. mál
[19:44]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Það er kannski ekki tilefni til að lengja þessa umræðu um of. Það er svo sem víðtækur stuðningur við þetta mál en það er samt nauðsynlegt að vekja athygli á því að það var af ástæðu sem þetta mál fór til þingnefndar á milli 2. og 3. umræðu. Það var fyrst og fremst vegna breytingartillögu frá okkur Sjálfstæðismönnum sem hv. þm. Brynjar Níelsson flutti hér við 2. umræðu. Sú breytingartillaga hlaut ansi ítarlega umræðu, bæði meðal stjórnarliða og okkar í stjórnarandstöðu og almennt var vel í hana tekið. Hún er hugsuð til að styrkja þetta mál og það er auðvitað sá grundvallarmunur sem er núna á stöðu útlendingamála í þinginu að stjórnarandstaðan styður við alla málaleitan stjórnarflokkanna til að koma fram með örugg og stór skref þegar kemur að útlendingamálum. Það er sem sagt víðtækari samstaða í þinginu en við höfum áður séð.

Virðulegur forseti. Þessi ríkisstjórn rekur sig ansi mikið á slagorðum. Það vantar ekki upphrópanirnar. Það vantar ekki loforðin og lýsingarnar um eigið ágæti og hvað þau ætli að gera mikið, hin mikla verkstjórn valkyrjanna. Útlendingamálin eru ekkert undanskilin þar, ekki frekar en orkumálin sem við fjöllum um hér á eftir. En hæstv. ráðherra hefur ítrekað komið fram og boðað stórstíg skref í átt að styrkingu útlendingalöggjafar en það hefur verið lítið um efndir. Þetta er fyrsta málið sem við erum að afgreiða hér síðan þessi ríkisstjórn kom til valda. Og það er ekki ágreiningur um málið við stjórnarandstöðu. Það blasir aftur á móti við að það er óeining innan ríkisstjórnarflokkanna í þessum málaflokki. Innan Samfylkingarinnar eru raddir og armur sem vill ekki fylgja ráðherranum í þessari vegferð. Við horfum á alveg sömu stöðu, þrátt fyrir heitstrengdar yfirlýsingar, í orkumálum birtast okkur hér í umræðu um rammaáætlun sem tekur við af þessari umræðu hér.

Með öðrum orðum: Sú tillaga sem við Sjálfstæðismenn lögðum fram var tekin til umfjöllunar í nefndinni á milli 2. og 3. umræðu málsins en fékk ekki framgang. Þingmenn meiri hlutans komu sér ekki saman um að styðja breytingartillögu sem allir eru þó sammála um að styrki málið mjög mikið og sé í raun alveg grundvallaratriði til að frumvarpið nái þeim markmiðum sem stefnt er að. Þingmenn meiri hlutans ná ekki saman. Hinn þekkti ágreiningur sem var hér á síðustu tveimur kjörtímabilum þar sem Samfylkingin og Viðreisn voru taglhnýtingar Vinstri grænna sem fóru fyrir forystu ríkisstjórnar sem við Sjálfstæðismenn vorum í og ítrekað reyndum að koma í gegn breytingartillögum í þessum málaflokki. Þá voru taglhnýtingarnir úr röðum Samfylkingarinnar og Viðreisnar sem stóðu með Vinstri grænum gegn öllum þeim tillögum sem við lögðum fram. Það veikti auðvitað okkar stöðu til að knýja á um breytingar. En því miður, virðulegur forseti, þrátt fyrir allar yfirlýsingarnar, öll loforðin, allar flugeldasýningarnar, þá er þetta áfram staðan. Ríkisstjórnarflokkarnir koma sér ekki saman um þessi alvöruskref í útlendingamálum vegna innbyrðis ágreinings. Þessu verður að halda til haga við þessa umræðu, virðulegur forseti.

Við í minni hlutanum munum áfram leggja áherslu á að mál hæstv. dómsmálaráðherra, sem hún kann að koma með hér inn í þingið í þessum málaflokki, fái góðan framgang og góða umfjöllun. Við munum áfram leggja fram tillögur sem ganga lengra. Við munum áfram berjast fyrir því að við komum okkur í umhverfi sem er sambærilegt því sem er í löndunum í kringum okkur. Við horfum á það að útlendingalöggjöf þarf nánast að vera eins og lifandi plagg vegna þess að breytingarnar eru svo örar, ef við ætlum að miða okkur við Norðurlöndin og mörg lönd Evrópu. Það verður stöðugt að vera að endurskoða þetta. Ég sagði það í ræðu fyrr um þetta mál við 2. umræðu málsins að við ættum að stíga fram og ganga lengra en aðrir. Við ættum ekki alltaf að vera þeir sem væru að teika aðrar þjóðir, við gætum alveg tekið stærri skref. Nú horfum við á það að bæði Norðmenn og Danir eru að ganga enn lengra í breytingum. Þeir eru að herða gríðarlega sína löggjöf og Svíar eru algerlega á sama báti. Varðandi ríkisborgararétt eru Svíar að stíga mjög stór skref í skerðingu möguleika fólks á því að hljóta ríkisborgararétt í Svíþjóð. Ætlum við að vera eftirbátar þessara þjóða?

Því miður, virðulegur forseti, óttast ég að með þessu ríkisstjórnarsamstarfi sem nú er í gangi, þar sem óeiningin og innbyrðis ágreiningurinn er svo augljós, verði það þannig að við verðum áfram eftirbátar annarra, eitthvað sem við Sjálfstæðismenn erum búnir að reyna að vinda ofan af í mörg ár en náðum ekki árangri, m.a. vegna mikils stuðnings Viðreisnar og Samfylkingar við sjónarmið Vinstri grænna sem leiddu ríkisstjórnina.

Virðulegur forseti. Við greiðum atkvæði um þessa tillögu og vonandi breytingartillögur sem meiri hlutinn verður þá að fella, sem tryggir markmið frumvarpsins. Við munum styðja málið, að sjálfsögðu. Öll skref í átt að bættu regluverki í kringum útlendingamál munum við styðja og munum vilja ganga lengra. Ég hvet því ríkisstjórnarflokkana til að standa nú við fyrirheitin, ekki vera bara með þessar flugeldasýningar og hástemmdar yfirlýsingar á tyllidögum, heldur standa við fyrirheitin, koma fram með eitthvað sem stenst skoðun, taka þátt í umræðunni með okkur og styðja þá þær tillögur til styrkingar regluverkinu og lögunum sem við leggjum fram í minni hlutanum.