157. löggjafarþing — 70. fundur,  16. feb. 2026.

varamenn taka þingsæti.

[15:00]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Þann 5. febrúar barst bréf frá Degi B. Eggertssyni um að hann yrði fjarverandi á næstunni í opinberum erindum. Fimmtudaginn 12. febrúar tók því sæti á Alþingi 3. varamaður á lista Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi norður, Lilja Hrönn Önnudóttir Hrannarsdóttir, en 1. og 2. varamaður á lista höfðu boðað forföll. Einnig hafa borist bréf frá formanni þingflokks Viðreisnar um að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir verði fjarverandi á næstunni og frá formanni þingflokks Samfylkingarinnar um að Eydís Ásbjörnsdóttir verði áfram frá þingstörfum á næstunni. Í dag taka því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Viðreisnar í Suðvesturkjördæmi, Karólína Helga Símonardóttir, og 3. varamaður á lista Samfylkingar í Norðausturkjördæmi, Stefán Þór Eysteinsson, og víkur þá 2. varamaður á lista, Sindri S. Kristjánsson, af þingi, en hann og 1. varamaður á lista hafa boðað forföll. Karólína Helga Símonardóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa að nýju.