157. löggjafarþing — 70. fundur,  16. feb. 2026.

tenging launavísitölu við bætur almannatrygginga.

[15:04]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Nú liggur fyrir þinginu, og er á dagskrá í dag, frumvarp ríkisstjórnarinnar um að tengja bætur almannatrygginga við launavísitölu. Svo því sé haldið til haga þá er Sjálfstæðisflokkurinn að sjálfsögðu ekki á móti því að fólk í almannatryggingakerfinu njóti sanngirni. Aftur á móti teljum við þetta frumvarp verulega varhugavert og óábyrgt. Nú er það þannig að hæstv. forsætisráðherra og hæstv. fjármálaráðherra hafa hingað til notið trausts sem hagfræðingar í samfélaginu. Því er það með nokkrum ólíkindum að hæstv. forsætisráðherra og hæstv. fjármálaráðherra skuli vera næstum einu hagfræðingar þessa lands sem tala fyrir þessu máli og telja þetta mál af hinu góða, telja þetta gott frumvarp. Hér erum við búin að sjá og heyra varnaðarorð frá m.a. Samtökum atvinnulífsins, Viðskiptaráði Íslands, Alþýðusambandi Íslands, frá virtum hagfræðingum eins og Axel Hall og Gylfa Zoëga, þeim hinum sama Zoëga og ríkisstjórnin treystir til að móta atvinnustefnu fyrir okkur Íslendinga en treystir greinilega ekki orðum hans þar sem hann varar við þessu, og nú síðast er það Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri, sem varar sömuleiðis við málinu og hefur tekið það fram að það hafi ekki verið kallað eftir umsögn Seðlabankans áður en farið var í þessa vegferð. Hann hefur staðfest það.

Því vil ég spyrja hæstv. forsætisráðherra: Af hverju var ekki leitað eftir umsögn Seðlabankans þegar stærðargráðan og áhætta þessa máls er augljós?