tenging launavísitölu við bætur almannatrygginga.
Frú forseti. Það liggur alveg fyrir að þegar Samfylkingin kom inn í ríkisstjórn þá var þetta eitt af þeim málum sem við lögðum áherslu á. Við sögðum þetta í útspili fyrir kosningar. Við sögðum þetta í kosningabaráttunni, við sögðum þetta í stefnuyfirlýsingu og ég hef sagt þetta í stefnuræðu. Það kann að hljóma ankannalega fyrir minni hlutann að hér sé stjórnarmeirihluti sem framfylgi stefnu sinni og klári og skili af sér sínum kosningaloforðum, en þetta er í takt við stefnu þessarar ríkisstjórnar og stefnu Samfylkingarinnar, að lífeyrir fylgi launum. Ég hef auðvitað orðið vör við þá umræðu sem hér hefur átt sér stað varðandi ákveðin atriði í þessu frumvarpi en það hefur komið á daginn, forseti, og ég leyfi mér að fullyrða það að veigamestu atriðin sem stjórnarandstaðan og álitsgjafar gagnrýndu voru byggð á misskilningi. Það er ekki tvöfaldur lás í þessu kerfi, það er ekki bæði verðbólga og laun sem eru bætt upp heldur stendur það mjög skýrt í greinargerð að taka á mið af launavísitölu og taka tillit til þess að það sé ekki tvöfaldur lás í því samhengi. Þetta geta allir orðið sér úti um, þeir sem lesa málið almennilega.
Hvað varðar umsögn Seðlabankans, þá er það ekki ríkisstjórnin sem ákveður nákvæmlega hvaða umsögnum er kallað eftir. Ég vil samt halda því til haga að í fyrsta lagi er öllum frjálst að senda hér inn umsögn. Í öðru lagi er það ekki þannig, þrátt fyrir allt, að Seðlabankinn semji lög um almannatryggingar. Það eru stjórnmálamenn hér inni. Það er löggjafinn sem gengur frá slíkum atriðum. Við höfum grandskoðað þetta mál. Við lofuðum þessu fyrir kosningar. Við erum að standa við þetta eftir kosningar. Þetta er reyndar það mál sem flestir stjórnmálaflokkar í gegnum tíðina hafa lofað þessum hópum en ekki staðið við, þannig að ég fagna því að þetta sé að komast til framkvæmda. Þetta er almennilega gert, það liggur alveg fyrir öllum þeim sem hafa lesið almennilega greinargerð þessa frumvarps.