157. löggjafarþing — 70. fundur,  16. feb. 2026.

tenging launavísitölu við bætur almannatrygginga.

[15:11]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Forseti. Mun ríkissjóður fara á hliðina vegna kjarabóta og bótagreiðslna til öryrkja og eldra fólks? Er það það sem fólk er að halda fram hérna? Að það að lífeyrir fylgi launum, það er sá hópur sem fær greiðslur — í rauninni lægstu tekjuhópar þessa samfélags. Það að kjaragliðnunin vaxi og vaxi og vaxi ekki, er það að fara að setja ríkissjóð á hausinn? Er það það sem hv. þingmaður, formaður Sjálfstæðisflokksins, er að halda hér fram, að það að lífeyrir fylgi launum hjá þeim sem eru á þessum lágu tekjum sé að fara að setja ríkissjóð á hausinn? Það er ekki rétt. Það er ekki tvöfaldur lás í þessu frumvarpi og það liggur líka alveg fyrir að fjárveitingarvaldið er Alþingis. Það er Alþingis á hverju einasta ári hér inni. Það er skýrt í greinargerðinni að ekki er um tvöfaldan lás að ræða. Hér getur þá hv. formaður Sjálfstæðisflokksins og aðrir þingmenn hér inni sem tala um feluleik og halda því fram að eitthvað annað liggi fyrir, komið hér upp og lýst því yfir að það borgi sig ekki og það megi ekki hækka greiðslur til þessa hóps því að það muni setja landið á hausinn. (Forseti hringir.) Það er ekki þannig. Þessi flokkur er fjármagnaður í fjárveitingum á vegum Alþingis (Forseti hringir.) ef tekið verður mið af fjármálaáætlun og ég hef ekki áhyggjur af þessu máli. Ég fagna því. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)