afstaða forsætisráðherra til inngöngu í Evrópusambandið.
Frú forseti. Hæstv. forsætisráðherra er ekki alltaf til í að veita fjölmiðlum viðtöl og svara fyrir hin ýmsu mál en undanfarna daga hefur hæstv. ráðherra mætt í nokkur viðtöl og þar með talið í hlaðvarpsviðtal hjá Þórarni Hjartarsyni sem heldur úti þættinum Ein pæling. Þar spunnust nokkuð sérkennilegar umræður um Evrópusambandið og hugsanlega aðild Íslands að því eða réttara sagt, svör hæstv. forsætisráðherra voru óvenjuleg. Hæstv. ráðherra byrjaði á því að segja að hann vildi ganga í Evrópusambandið ef við fengjum góða samninga og ítrekaði svo afstöðu sína: Ef við fáum góða samninga. En spurður um hvað hæstv. ráðherra vildi gera ef Ísland fengi ekki góða samninga eða, eins og sérstaklega var spurt um, ef Ísland fengi ekki varanlegar undanþágur frá til að mynda auðlindamálum þá var fátt um svör. Hæstv. forsætisráðherra fyrtist við, held ég að mér sé óhætt að segja, og leitaðist við að drepa málum á dreif, svaraði ekki spurningunni.
Nú ætla ég ekki að halda því fram að hæstv. forsætisráðherra Íslands geti verið svo illa með á nótunum um Evrópusambandið og hvað aðildarumsókn að Evrópusambandinu gengur út á að hæstv. ráðherra viti það ekki að ekkert ríki sækir um aðild að Evrópusambandinu án þess að ætla sér að ganga þar inn og að viðræðurnar snúist um það með hvaða hætti og eingöngu með hvaða hætti umsóknarríkið ætli að uppfylla kröfur Evrópusambandsins. Hæstv. forsætisráðherra hlýtur að vita þetta. Því ætla ég að gefa hæstv. forsætisráðherra annað tækifæri til að svara spurningunni: Er hæstv. forsætisráðherra hlynntur því að Ísland gangi í Evrópusambandið (Forseti hringir.) þegar Ísland fær ekki varanlegar undanþágur, m.a. í auðlindamálum?