afstaða forsætisráðherra til inngöngu í Evrópusambandið.
Frú forseti. Ég verð að viðurkenna að ég átta mig ekki alveg á því hvert hv. þingmaður ætlar með þessa umræðu. Það er alltaf verið að reyna að gera það tortryggilegt að þessi ríkisstjórn ætli sér í tvöfalda atkvæðagreiðslu, eins og það sé engin merking á bak við það. Það er alltaf látið eins og að fyrri atkvæðagreiðslan snúist um eitthvað annað en hún gerir, eins og maður ætli ekki að hlusta á þjóðina, eins og maður hafi engin prinsipp, eins og maður ætli sér bara óvart að lenda í Evrópusambandinu. Ég hef alveg verið skýr hvað það varðar að það er gríðarlegur munur á fyrri og seinni atkvæðagreiðslunni. Fyrri atkvæðagreiðslan snýst um það hvort við ætlum að fara í þá vegferð — sem, já, tekur orku, tekur tíma, tekur umhugsun, tekur að einhverju leyti athygli en gæti vel verið þess virði — að fara í samningaviðræður við Evrópusambandið. Hv. þingmaður vill auðvitað kalla það aðlögunarviðræður vegna þess að það er eitthvað sem hentar hans pólitík, að segja við þjóðina að það borgi sig ekki einu sinni að eiga samtalið. Gott og vel. Það er eitthvað sem hv. þingmaður getur sagt í aðdraganda þessarar atkvæðagreiðslu. Það er ekki mín skoðun. Ég tel, eftir samtöl við hv. aðila innan Evrópusambandsins, að það sé hægt að semja um eitthvað. En ég hef líka verið skýr á því að það þýðir ekkert fyrir mig að segja það. Við þurfum endanlega að fá það á hreint. Við þurfum að fá einhvern samning í hendurnar. Ég hef verið alveg skýr á því. Ég forðast ekkert að nefna það að ef við fáum ekki þær undanþágur, ef við fáum ekki þau viðmið, ef við fáum ekki þá lendingu í samningnum varðandi auðlindamál sem ég hygg að sé farsæl fyrir Ísland, þá mun ég svara nei í seinni atkvæðagreiðslunni. Ég veit ekki hvort hv. þingmaður haldi að hann geti einhvern veginn platað mig hvað það varðar. Ég hef verið alveg skýr hvað það varðar. Ég veit vel hver sérstaða Íslands er. Ég veit fullvel hver hún er í fiskveiðum, hver hún er í orkumálum og öðru. Ég held hins vegar að við höfum sjaldan verið í jafn góðri stöðu og nú til að ræða við Evrópusambandið um slíkar undanþágur og ég þori að taka það samtal, ólíkt hv. þingmanni sem er að reyna að selja íslensku þjóðinni það að það borgi sig ekki einu sinni í núverandi heimsmynd að ræða við Evrópusambandið.