afstaða forsætisráðherra til inngöngu í Evrópusambandið.
Forseti. Ég þarf ekki seinni spurningu. Hæstv. forsætisráðherra er þegar búin að staðfesta það sem mig grunaði og það sem ég óttaðist, að hæstv. ráðherra er þátttakandi í því með Viðreisn, formanni þess flokks, að tala í kringum hlutina og reyna að blekkja fólk eitt skref í einu inn í Evrópusambandið. Hæstv. ráðherra getur þóst ekki vita út á hvað umsókn um aðild að Evrópusambandinu gangi. Hún getur ímyndað sér hugsanlega að hægt sé að plata einhvern hluta almennings með slíkum málflutningi. En það er ekki hægt að plata alla, sérstaklega ekki þegar Evrópusambandið sjálft er ítrekað búið að reyna að benda Íslendingum á, þar með talið þegar fyrri umsóknin var lögð fram, að það sé ekki til neitt sem heitir að kíkja í pakkann og fara í samningaviðræður. Ef ríki sækir um aðild að Evrópusambandinu þá er það vegna þess að ríkið vill ganga í Evrópusambandið og ætlar svo að útskýra hvernig það mun uppfylla kröfur Evrópusambandsins. Mér finnst fyrir neðan allar hellur að hæstv. forsætisráðherra skuli í svona mikilvægu máli leitast við að snúa út úr, villa um fyrir fólki og plata, sem er einmitt það sem hæstv. ráðherra sagði fyrir kosningar að væri ljótt að gera. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)