staða Landspítalans.
Virðulegur forseti. Ástandið á Landspítalanum hefur nú verið ítrekað til umræðu, svo sem síðustu áratugi. Það hefur lítið breyst með þessari nýju ríkisstjórn og í rauninni mætti segja: nema síður sé. Hæstv. heilbrigðisráðherra var í viðtali á Sprengisandi um helgina. Það viðtal var ágætt svo langt sem það náði. Ég setti það svolítið í samhengi við frumvarp sem nú liggur fyrir þinginu og er til meðferðar, sem er frumvarp um ýmsar breytingar á lögum um sjúkratryggingar, sem lýsir miklu vantrausti til viðsemjenda ríkisins, þ.e. sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsfólks sem selja ríkinu heilbrigðisþjónustu. Það liggja núna fyrir umsagnir um þetta mál sem virðast vera allar á einn veg og mikil andmæli sem berast úr ranni sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsfólks.
Það liggur líka fyrir núna, það hefur verið í fréttum, að samstarf við einkaaðila, þ.e. boð einkaaðila um aðstoð vegna álagsins á Landspítalanum, hefur legið fyrir frá því í nóvember. Á Sprengisandi var því lýst að því hefði verið tekið. Mín spurning lýtur að því af hverju það er alltaf farið og leitað lausna þegar í óefni er komið. Hefði ekki verið nær og hafði ráðherrann kannski ekki hugsun á því fyrr, eða Landspítalinn sjálfur eða bæði Landspítalann og ráðherrann, að hafa forgöngu um þessi samskipti við þetta fyrirtæki sem um ræðir, Klíníkina, um þessi mál? Það kom líka fram á Sprengisandi að Landspítalinn hefði sjálfur metið það svo að ekki væri rétt að þiggja boð þessa fyrirtækis um nýtingu skurðrýma heldur eingöngu til að mæta þessum svokallaða fráflæðisvanda.
Mín spurningin þessi: Er þetta skynsamleg nýting á sérhæfðum legurýmum eða skurðstofum sjálfstætt starfandi fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu, t.d. með tilliti til þessara smitsjúkdóma sem virðast skekja Landspítalann þessi dægrin?