aðgerðir vegna stöðu á bráðamóttöku Landspítalans.
Virðulegur forseti. Ég vil nota tækifærið hérna til að ræða ástandið á bráðamóttökunni. Þau neyðaróp sem þaðan berast hafa aldrei verið háværari því að álagið hefur aukist þar til mikilla muna á undanförnum mánuðum. Starfsfólkið vinnur þrekvirki á hverjum degi við að sinna slösuðum og sjúkum en nú er svo komið að ástandið á bráðamóttökunni er farið að koma niður á annarri starfsemi sjúkrahússins eins og kom fram í hádegisfréttum í dag. Við höfum rætt það að á bráðamóttökunni koma allir; þeir sem eru í bráðri hættu vegna skyndilegra veikinda eða alvarlegra slysa, einnig þeir sem hafa brotið bein eða hlotið það sem kalla má minni háttar áverka og þurfa að bíða tímunum saman eftir þjónustu og svo aldraðir einstaklingar sem fyrst og fremst eiga við veikindi eða önnur vandamál að etja sem tengjast öldrun þeirra. Það þarf að bregðast við strax með ákveðnum skyndilausnum, jú, gott og vel, en nú er lag til að ræða hvort það færi ekki betur á því að brjóta þessa starfsemi upp þar sem í fyrsta lagi yrði sinnt þjónustu vegna minni slysa og áverka, í öðru lagi að alvarleg veikindi og slys verði áfram á bráðamóttöku Landspítalans og í þriðja lagi að sérstakri bráðadeild fyrir aldraða yrði komið á. Slík aðgreining tíðkast víða á Norðurlöndunum og er tilteknum verkefnum útvistað til einkaaðila í heilbrigðisþjónustu.
Mig langar að fá það skýrar fram frá hæstv. heilbrigðisráðherra hvort þetta komi til greina að hennar mati. Ekki vísa bara í fleiri skýrslur, þær eru til lítils gagns hérna í dag. Hvert er viðhorf ráðherrans til þess að brjóta bráðamóttökuna frekar upp? Kæmi til greina að fela einkaaðilum í heilbrigðisþjónustu tiltekin verkefni?