útlendingar.
Virðulegi forseti. Við Sjálfstæðismenn fögnum markmiði frumvarpsins sem er að samræma íslenska útlendingalöggjöf við löggjöfina á Norðurlöndunum. Hins vegar getum við ekki séð að þetta frumvarp í óbreyttri mynd tryggi að alvarleg brot þeirra sem hlotið hafa alþjóðlega vernd leiði til tafarlausrar afturköllunar verndar. Þess vegna höfum við lagt fram breytingartillögur sem skerpa á ákvæðum frumvarpsins og herða úrræði stjórnvalda til afturköllunar verndar og við teljum það mjög mikilvægt. Það er fyrir fullvalda ríki nauðsynlegt að vernda borgarana og það eru ekki einhver almenn mannréttindi fólks að koma hingað til lands eingöngu til að fremja afbrot og þess vegna eru gildar ástæður til afturköllunar þegar einstaklingur er hættulegur öryggi ríkisins eða hefur hlotið endanlega dóm fyrir alvarleg brot. Í slíkum tilvikum á að vera skylt, ekki heimilt, að afturkalla vernd. Heimild til þess (Forseti hringir.) skal vera til staðar í öllum öðrum tilvikum. Við samþykkjum frumvarpið en biðlum til þingheims um að samþykkja breytingartillögu okkar Sjálfstæðismanna við þetta frumvarp.
(Forseti (ÞSv): Forseti minnir á að ræðutími þegar talað er um atkvæðagreiðslu er ein mínúta.)