157. löggjafarþing — 70. fundur,  16. feb. 2026.

útlendingar.

112. mál
[15:44]
Horfa

Snorri Másson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Hér kemur loks til atkvæðagreiðslu eftir langt þref ágætt mál fyrir margra hluta sakir þótt betur hefði farið á að hafa þetta sannarlega skyldu til að brottvísa í þessum tilfellum sem þarna er rætt um en ekki bara heimild. Við vitum ekki alveg nákvæmlega hvernig framkvæmdin verður en maður óskar sér þess að heimildin muni hegða sér að einhverju leyti eins og skylda vegna þess að það er að mínu mati skylda stjórnvalda að bregðast af fullum þunga við því ef menn eru að svíkja þennan samfélagssáttmála sem hefur komið hérna upp með alþjóðlegri vernd.

Á fyrri stigum getur maður lofað þá ákvörðun hæstv. dómsmálaráðherra að hafa þarna inni ítrekuð brot, sem var upphaflega tillaga mín í allsherjarnefnd. Sú vinna bar árangur inni í nefndinni og að því leyti má þakka nefndinni fyrir þá góðu vinnu. Hitt náði ekki jafn langt, þ.e. um að breyta þessu í skyldu frekar en heimild. Að öðru leyti, jafnvel þótt sú breytingartillaga nái ekki fram að ganga, sem maður þó hvetur þingheim til að taka til greina, mun ég styðja frumvarpið í heild sinni.