útlendingar.
Frú forseti. Ég á erfitt með að skilja hvað 1. minni hluta allsherjar- og menntamálanefndar gengur eiginlega til með því að gera þetta að skyldu í stað heimildar í ljósi þess að hér er verið að láta í veðri vaka að ekki sé um að ræða öfluga heimild til þess að gera það sem á að gera með þessu frumvarpi, sem er að afturkalla vernd þeirra sem brotið hafa gegn reglum á Íslandi. Hér er um að ræða öfluga réttarheimild en það sem lagt er til í 1. minni hluta yrði í rauninni einstakt á norræna og evrópska vísu í ljósi þess að hér talar fólk um mikilvægi þess að fylgja norrænum fyrirmyndum. Yrði þetta gert að skyldu yrði þessi fátæklega breytingartillaga til þess fallin að þyngja verulega á dómstólakerfinu. Þetta er mjög matskennt — hvað er hættulegt íslensku samfélagi? Hér er að fara að verða til öflug, og reyndar matskennd, heimildarregla sem byggist á norrænum fordæmum. Þetta er auðvitað réttarframkvæmd sem mótast í framkvæmd. Hér verður til (Forseti hringir.) öflugt úrræði fyrir íslenska stjórnsýslu og ég hef fulla trú á því að því verði beitt í reynd.